Foreldrar sem voru á dögunum dæmdir fyrir ofbeldi í garð dætra sinna misstu í kjölfarið forsjá yfir þeim. Þetta úrskurðaði Landsréttur á dögunum.
Fréttablaðið hefur fjallað um málið, en í frétt miðilsins kemur fram að börnin óttist foreldra sína, en þó aðallega föður sinn, og treysta ekki móður sinni til að tryggja öryggi sitt og velferð.
Um móðurina kemur fram í dómi Landsréttar að hún glími við veikleika á tilfinningasviði og sé í afneitun gagnvart eigin gjörðum. Henni skorti innsæi í eigin stöðu og vanda og skilning á tilfinningalífi og þörfum dætra sinna. Þá þykir vandséð að hún gæti byggt upp traust og tengsl við dæturnar að nýju.
Fréttablaðið fjallaði einnig um dóminn sem féll á dögunum, en þar kom fram að maðurinn hefði til að mynda verið ákærður fyrir að slá dætur sínar margoft víðs vegar um líkamann, líkt og í hendur fætur, bak, rass, háls og andlit, ýmist með belti, skóm, flötum lófa, herðatré, leikfangapíanói, fötum og eftir atvikum því sem hendi var næst. Þar að auki var hann ákærður fyrir að kasta í þær skóm og hrækja á þær.
Jafnframt var hann sakfelldur fyrir að beita eiginkonu sína ofbeldi, og þá var hún sakfelld fyrir að beita elstu þrjár dætur sínar ofbeldi.
Brotin áttu sér aðallega stað á heimili þeirra í Reykjanesbæ.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins, hér og hér.