Harmleikur í Hafnarfirði: Ungur maður látinn eftir átök í gærkvöldi

Fjórir eru í haldi Lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á þrítugsaldri í Hafnarfirði í gær.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

„Upphaf málsins var að tilkynning barst lögreglu á tólfta tímanum í gærkvöld um átök á bifreiðastæði við verslunina Fjarðarkaup á Hólshrauni. Lögreglan hélt þegar á vettvang og fann þolandann, sem var fluttur á slysadeild og úrskurðaður þar látinn skömmu síðar. Í kjölfarið voru fjórir aðilar handteknir í tengslum við málið,“ segir í skeyti lögreglu.

Rannsóknin er á frumstigi og verða ekki veittar frekar upplýsingar um málið að svo stöddu, að sögn lögreglu.