Harmleikur í Hafnarfirði: Fjögurra ára drengur lést í kjölfar slyss

Fjögurra ára drengur í Hafnarfirði lést á Landspítalanum á mánudag. Í frétt Fréttablaðsins staðfestir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði, að aðskotahlutur hafi fests í hálsi drengnum með fyrrgreindum afleiðingum.

Mannlíf greindi fyrst frá málinu í morgun.

Í frétt Mannlífs er vísað í tilkynningu frá leikskóla drengsins þar sem fram kemur að drengurinn hafi orðið fyrir alvarlegu slysi á leiðinni heim úr leik­skólanum síðast­liðinn mið­viku­dag. Varð slysið til þess að drengurinn lést á mánu­dags­morgun eftir að­hlynningu á Land­spítalanum.

Þá kemur fram í fréttinni að á­falla­t­eymi leik­skólans og á­falla­hjálpar­teymi Hafnar­fjarðar hafi verið virkjað.

„Hugur okkar allra er hjá for­eldrum og fjöl­skyldu og við sendum þeim okkar inni­legustu sam­úðar­kveðjur,“ segir í til­kynningu leik­skólans sem vísað er til í frétt Mann­lífs.