Sam Butler sex ára gamall drengur sem hefur barist fyrir lífi sínu síðan á sunnudaginn lést á spítala í gær.
Hann var einn af þremur drengjum sem hafa látist í vikunni eftir að ís brast undan þeim á vatni í Solihull á sunnudaginn. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins sem er unnin upp úr breskum fjölmiðlum.
Hinir drengirnir sem létust voru Finley Butler átta ára, Jack Johnson tíu ára og Thomas Stewart ellefu ára. Finley, Thomas og Jack fundust allir látnir í vatninu en hinn sex ára Sam fannst á lífi og barðist fyrir lífi sínu á spítala þangað til í gær.
Tíu ára reyndi að bjarga vinum sínum
Heimamenn greindu frá því í fjölmiðlum að maður nálægt Babbs Mill vatninu heyrði drengina öskra á hjálp áður en þeir sukku ofan í ískalt vatnið. Hann hringdi á lögregluna og hljóp á eftir þeim ofan í vatnið. Þegar hann kom á vettvang hafði hinn tíu ára Jack Johnson sem var á bakkanum þegar ísinn brast einnig farið ofan í vatnið til að hjálpa vinum sínum. Hann sem fyrr segir lést einnig.
Maðurinn á staðnum er sagður hafa gert sitt besta að reyna bjarga drengjunum en hafði ekki árangur sem erfiði. Lífgunartilraunir við bakkann hjá þremur drengjum báru ekki árangur en Sam var einn fluttur á spítala.
Samkvæmt fjölskyldumeðlimum drengjanna fóru þeir að vatninu til að gefa öndunum að borða.