Maður hlaut á dögunum níu mánaða skilorðsbundin fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir árás gegn barnsmóður sinni. En árásin átti sér stað fyrir framan þriggja ára son þeirra á heimili þeirra á Akureyri þann 1. desember í fyrra. Fjallað er um málið í Fréttablaðinu.
Í ákæru málsins kemur fram að manninum sé gefið að sök að klípa konuna ítrekað í líkamann. Í kjölfarið hafi hún hringt á neyðarlínuna til að fá hjálp við að fjarlægja hann úr íbúðinni. Þá hafi hann slegið hana föstu hnefahöggi í höfuð, tekið hana kverkataki, sparkað í hana og kýlt hana ítrekað í hnakkann, auk þess sem ákærði beit í fingur hægri handar hennar og hótað að drepa hana.
Þá segir jafnframt í ákærunni að þetta hafi gerst fyrir framan þriggja ára gamlan son þeirra, sem hafi reynt að koma móður sinni til bjargar með því að berja föður sinn.
Maðurinn neitaði sök, en framburður hans þótti ótrúverðugur. Hins vegar þótti frásögn konunnar trúverðug.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef Fréttablaðsins.