Harmleikur á aðfangadag dregur dilk á eftir sér og tengist nú Íslandi

Írskur maður, sem er grunaður um að fremja líkamsárás með hníf á aðfangadag árið 2019 í íbúð í heimalandinu, hefur dvalið á Íslandi í nokkur ár.

Hann verður nú framseldur aftur til Írlands vegna málsins. Þetta staðfesti Landsréttur í vikunni. Fréttablaðið fjallar um málið.

Hann er grunaður um að hafa ráðist með hnífi á annan mann og valdið honum áverkum. Fram kemur að hann sé grunaður um tvö brot. Annars vegar fyrir líkamsárás og hins vegar fyrir að hafa notast við hlut sem getur valdið alvarlegum líkamlegum áverkum. Hvort brotið um sig getur varðað allt að fimm ára fangelsi.

Maðurinn fram að hann hafi átt við áfengisvandamál að stríða og verið um tíma óvinnufær af þeim ástæðum. Nú væri hann staddur á áfangaheimili í borginni og þar liði honum vel.

Hans áform væru að vera lengur hér á landi, koma sér í eigið húsnæði og leggja stund á vinnu. Þá væri vilji hans á fá ólögráða dóttur sína til landsins. Hann sagði að það yrði sér mjög þungbært yrði honum gert að yfirgefa landið og fara til Írlands.

Maðurinn neitar sök og vill meina að hann hafi verið að verja sjálfan sig gegn árás annars manns og að þeir hafi verið að rífast í aðdraganda atviksins.

„Áfengi hefði verið haft um hönd. Þá kvaðst varnaraðili ekki vita hvort hann var með  hnífinn í hendinni eða hvort hann greip til hnífs í þeim átökum sem urðu.“ segir í úrskurðinum.

Nánar er hægt að lesa um málið á vef Fréttablaðsins.