Hlaðvarpsþátturinn Harmageddon býður nú áskrifendum sínum um að segja upp áskriftinni að hlaðvarpinu. Fram kemur í tölvupósti til áskrifenda sem sendur var í dag að þátturinn hafi ekki verið virkur síðustu vikuna.
„Við vitum ekki nákvæmlega hversu lengi við verðum frá en biðjumst velvirðingar á þessu,“ segir í póstinum. Fyrir neðan eru svo leiðbeiningar um hvernig segja má upp áskriftinni.
Fyrr í þessum mánuði fór annar þáttastjórnandanna, Frosti Logason, í leyfi frá störfum vegna ásakana fyrrverandi kærustu hans um andlegt ofbeldi. Frosti óskaði sjálfur eftir því að fara í leyfi.
Frosti var í sambandi með Eddu Pétursdóttur á árunum 2009 til 2012. Hún steig fram í hlaðvarpsþættinum Eigin konur, þar sem Frosti var ekki nafngreindur, og sagði að hann hafi hótað að birta kynferðisleg myndbönd af henni sem hann hafi tekið upp án hennar vitundar þegar þau voru saman. Í kjölfarið, eftir að hann var nánast nafngreindur á samfélagsmiðlum, steig hann sjálfur fram, gekkst við hegðun sinni og baðst afsökunar.
„Ég veit að ekkert bætt fyrir hegðun mína, það minnsta sem ég get gert er að gangast við því sem ég gerði og biðjast innilegrar afsökunar,“ sagði Frosti.
Stuttu síðar kom viðtal í Fréttablaðinu við Erlu Gunnarsdóttur sem lagði fram kæru á hendur barnsföður sínum vegna ofbeldis, sagðist hún ósátt við að Frosti hafi fullyrt í bréfi til sýslumanns að barnsfaðirinn væri hvorki ofbeldismaður né hafi nokkurn tíma verið.
Frosti staðfesti að hann hafi setið fund hjá sýslumanni og skrifað bréf fyrir barnsföður Erlu en hann hafi gert það í góðri trú.