Guðfinnur Sigurvinsson, fyrrverandi fréttamaður á RÚV, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varabæjarfulltrúi í Garðabæ, hefur vakið nokkuð hörð viðbrögð vegna færslu sem hann skrifaði um mál Þorvaldar Gylfasonar hagfræðiprófessors.
Eins og fjallað var um í síðustu viku beitti efnahags- og fjármálaráðuneytið sér gegn því að Þorvaldur fengi ritstjórastöðu fræðitímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Sérhagsmunagæsla
Í færslu sinni sagði Guðfinnur:
„Nú þegar atvinnuleysi er í hæstu hæðum vegna Covid19 og óvissunnar framundan, heilu atvinnuvegirnir róa lífróður og launþegar ströggla við að ná endum saman fyrir sig og fjölskyldur sínar er svo afhjúpandi að stjórnarandstöðuflokkar, einkum Samfylkingin og Píratar, skuli vart ná andanum af hneykslan vegna þess að roskinn háskólaprófessor, búsettur í Skuggahverfinu, sem vænta má góðra eftirlauna og aldrei hefur þekkt nokkurn skort á ævinni, skuli á lokaspretti starfsævinnar fara á mis við blaðamannagigg sem honum í reynd stóð aldrei til boða. Það hefur verið talað um sérhagsmunagæslu af minna tilefni.“
Óhætt er að segja að pistillinn hafi vakið nokkuð hörð viðbrögð en Guðfinnur bætir við í athugasemdum að Þorvaldur hafi ítrekað líkt Sjálfstæðismönnum við nasista.
Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku við Háskóla Íslands, segir engan vafa leika á að Þorvaldur hafi iðulega verið stóryrtur og stundum farið yfir eðlileg mörk. Það hafi þó ekki alltaf beinst gegn Sjálfstæðisflokknum.
„En öll dæmi sem ég hef séð tilfærð um það eru úr umræðu á samfélagsmiðlum eða í dagblöðum. Enginn hefur mér vitanlega komið með dæmi úr fræðilegum skrifum hans - sem hljóta að vera aðalatriðið þegar um akademíska ritstjórn er að ræða.“
Valdníðsla í lagi í ljósi aðstæðna?
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta til fjölmargra ára, segir Guðfinn beita svokallaðri gaslýsingu (e. Gaslighting).
„Gaslighting má vinna betur en þetta! Aldur mannsins og fjárhagsleg staða hans, covid 19 og atvinnuleysi hafa ekkert að gera með það þegar valdafólk bregður fæti fyrir akademikara sem eru þeim ekki þóknanlegir. Kómískt þegar svo forsætisráðherra bætir enn í og bætir við að kyn hans hafi líka verið rangt. Pínu óvirðing við skynsemi venjulegs fólks.“
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir einfaldlega: „Æ nei. Leiðinlegt að sjá þessa færslu frá þér.“ Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, segir: „Þetta er rosalega krúttleg leið til að segja að valdníðsla sé í lagi í ljósi aðstæðna og þess að sá sem varð fyrir henni mátti eiginlega bara alveg við því.“
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar og fyrrverandi fréttamaður, segir að honum þyki leitt að lesa færsluna. „Tek undir þau orð að þú sért betri en þetta.“ Þá segir Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins: „Þetta er svo lame status að það hálfa væri yfirdrifið.“
Tekur gagnrýnina ekki til sín
Sjálfur gefur Guðfinnur lítið fyrir gagnrýnina sem hann hefur fengið í athugasemdunum.
„Hissa á að valda Samfylkingarfólki og Pírötum svona sárum vonbrigðum enda þeim ekki samferða að nokkru leyti. Ekkert hefur þetta ágæta fólk þó að segja um munnsöfnuðinn sem Þorvaldur lætur frá sér. Skautar létt frá því og lítur í hina áttina en finnur að því að ég setji mitt mál fram án svívirðinga. Get því ómögulega tekið til mín þessar umvandanir sem augljóslega er bara skjaldborg um vin ykkar og samherja Þorvald sem ætti auðvitað bara að eiga þetta við þann sem bauð honum starfið án þess að hafa til þess umboð.“