Haraldur var á leið heim þegar hann varð vitni að glóru­lausri hegðun nokkurra öku­manna

Haraldur Karls­son, íbúi í Háa­leitis- og Bú­staða­hverfi, á­kvað að senda bréf til í­búa­ráðs Háa­leitis- og Bú­staða­hverfis eftir at­vik sem hann varð vitni að á Bú­staða­vegi í byrjun desem­ber­mánaðar.

„Að morgni þriðju­dagsins 1. desember síðast­liðnum ók ég Bú­staða­veg í austur­átt og var á leið heim til heima­vinnu eins og oft áður. Þegar ég nálgaðist göngu­ljósin sem stað­sett eru við Ás­garð, þá gerðist nokkuð á­huga­vert. Þrír bíl­stjórar tóku sig til og óku rak­leitt gegn rauðu ljósi, sem var þá grænt fyrir gangandi veg­far­endur,“ sagði hann í bréfi sínu.

Morgun­blaðið greinir frá því í dag að meiri­hluti í­búa­ráðs Háa­leitis- og Bú­staða­hverfis vilji að há­marks­hraði á Bú­staða­vegi verði lækkaður hið fyrsta, úr 50 kíló­metrum á klukku­stund í 30 kíló­metra, og er á­stæðan meðal annars fyrr­nefnt bréf sem barst ráðinu. Þá hefur for­manni ráðsins einnig borist til eyrna á­hyggjur íbúa af hegðun öku­manna á svæðinu.

„Við fjöl­skyldan búum ofan við Bú­staða­veg og nýtum okkur Foss­voginn tals­vert allt árið um kring til úti­veru og heim­sækjum þar fjöl­skyldu og vini og þá nýtum við okkur jafnan þessi um­töluðu göngu­ljós. Okkur blöskrar stundum til­lits­leysið og ó­virðing fólks þegar það sér okkur nálgast ljósin, jafn­vel alla fjöl­skylduna með barna­vagn og kerru, þá er gefið í til að þurfa örugg­lega ekki að stoppa og bíða í nokkrar sekúndur. Þó að rauða ljósið sé búið að loga í 1,2,3 sekúndur – þá er brunað yfir,“ sagði Haraldur í bréfi sínu.

Vig­dís Hauks­dóttir, borgar­full­trúi Mið­flokksins, leggst hart gegn því að há­marks­hraðinn verði lækkaður. „Síðast­liðin 5 ár hafa engin slys orðið þar sem ekið er á gangandi veg­far­endur á þessum hluta Bú­staða­vegar, fyrir utan eitt sem átti sér stað kl. 02:35 þar sem ekið var á gangandi veg­faranda sem stóð út á miðri ak­braut við sjoppuna á gatna­mótum Bú­staða­vegar og Soga­vegar,“ segir hún í bókun sinni.

Hún segir að aðal­á­stæða þess að mikil um­ferð er á Bú­staða­veginum sé vegna um­ferðar­teppu sem búið er að skapa með „ljósa­stýringar­þrenginar­stefnu meiri­hlutans“. Fólk veigri sér við að aka Miklu­braut og aðrar stof­næðar Reykja­víkur­borgar.

„Þar sem er fólk og þar sem eru bílar er alltaf á­kveðin hætt á slysum og ber hver á­byrgð á sjálfum sér í þeim efnum.“

Hún segir að það hafi einnig verið á­kvörðun borgar­stjóra og meiri­hlutans að lækka götu­lýsingu úr 50 LÚX í 20 LÚX fyrir skömmu.

„Það eitt og sér hefur skapað ó­mælda slysa­hættu langt um­fram 50 km há­marks­hraða í borginni allri. Til þess að tryggja öryggi gangandi veg­faranda sem best er far­sælast að leysa götu­þveranir með göngu­brúm eða göngum undir stofn­vegi."

Í­búa­ráðið á­kvað að fara þess á leit að um­ferðar­hraði á Bú­staða­vegi verði lækkaður niður í 30 km/klst hið fyrsta. Þannig yrði hagur barna, ung­menna og annara gangandi og hjólandi veg­far­enda í hverfinu settur í for­gang. „Einnig að lýsing við gang­brautir verði bætt sem og aðrar hugsan­legar heild­rænar að­gerðir til að auka öryggi gangandi veg­far­enda í og við Bú­staða­veg."