Haraldur útskýrir hvers vegna hann vildi verða skattakóngur

Haraldur Ingi Þorleifsson, sá sem greiddi næsthæstu skattana hér á landi á síðasta árs, segir að það hafi verið sérstakt markmið hjá sér að verða skattakóngur ársins.

Haraldur varð að gera sér að góðu að vera í 2. sæti en aðeins Magnús Steinar Norðdahl, fyrrverandi forstjóri LS Retail, greiddi hærri skatta en hann á síðasta ári.

Haraldur tjáði sig um málið á Twitter fyrr í dag en eins og komið hefur fram seldi hann fyrirtæki sitt, Ueno, til Twitter og ákvað að greiða alla skatta af sölunni hér á landi.

Haraldur útskýrir fyrir erlendum fylgjendum sínum á Twitter að einu sinni á ári séu skattaupplýsingar liðins árs gerðar opinberar hér á landi.

„Ég vonaðist til þess að vera sá sem greiddi hæstu skattana á síðasta ári. En ég var í 2. sæti og þigg þann heiður,“ segir Haraldur sem útskýrir hvers vegna hann er stoltur af þessu. Kveðst Haraldur vilja endurgreiða samfélaginu sem gaf fötluðu barni af verkamannastétt fría menntun og fría heilbrigðisþjónustu eins og hann orðar það. Haraldur er í hjólastól en hefur ekki látið fötlunina aftra sér frá því að láta drauma sína rætast.

Haraldur hefur einnig vakið at­hygli hér á landi undanfarin misseri með á­takinu Römpum upp Reykja­vík og Römpum upp Ís­land, en mark­mið þess er að tryggja að hreyfi­hamlaðir komist leiðir sinnar, meðal annars við verslanir og veitinga­staði. Átakinu Römpum upp Ís­land var hleypt af stokkunum í vor og er mark­miðið að byggja þúsund rampa um allt land á næstu fjórum árum.