Haraldur út­skýrir af hverju hann vildi greiða alla skatta á Ís­landi: „Við þurfum öll stundum hjálp og við getum öll stundum hjálpað“

Haraldur Ingi Þor­­leifs­­son, stofnandi Ueno, starfs­­maður Twitter og bar­áttu­­maður fyrir bættu að­­gengi hreyfi­hamlaðra í al­­mennings­­rýmum, var einn af skatta­­kóngum Ís­lands í fyrra.

Sam­­kvæmt á­lagningar­­skrá ríkis­skatt­­stjóra, sem lögð var fram í gær, námu mánaðar­­laun hans rúmum 102 milljónum króna sam­­kvæmt greiddu út­­svari.

Að­eins Magnús Steinarr Norð­dal, fyrr­verandi for­­stjóri LS Reta­il, var ofar á listanum en laun hans námu rúmum 117 milljónum króna á mánuði að meðal­­tali.

Haraldur Ingi seldi fyrir­­­tæki sitt, Ueno, til Twitter í fyrra og á­kvað hann að greiða skatt af sölunni á Ís­landi. Vildi Haraldur með því styðja meðal annars við ís­­lenskt heil­brigðis- og mennta­­kerfi. Við söluna samdi hann um að stærstur hluti kaup­verðsins yrði greiddur með launa­­greiðslum og varð hann í kjöl­farið starfs­­maður Twitter. Greindi Við­­skipta­blaðið frá því í vor að Haraldur hefði greitt um hálfan milljarð í tekju­skatt og launa­­tengd gjöld hér á landi frá því að salan átti sér stað.

Í við­tali við Stundina út­skýrir Haraldur þessa á­kvörðun og segir að þegar hann var ungur átti hann nánast ekkert.

„Ef ég hefði ekki getað feng­ið ör­orku­bæt­ur þeg­ar ég þurfti þær þá hefði ég ekki getað lif­að af,“ seg­ir Har­ald­ur Ingi við Stundina. „Það er auð­veldara að lifa með hærri tekjur en lægri. En það er samt alltaf erfitt að vera til,“ bætir hann við.

Hann segist hafa alist upp í verka­manna­fjöl­skyldu með líkam­lega fötlun og hefði það ekki verið ó­keypis menntun og heil­brigðis­kerfi á Ís­landi hefði lífið hans verið allt öðru­vísi.

„Það væri best að við myndum líta á okkur sem eina heild. Við erum ekki að gefa eða þiggja, við erum að passa upp á hvert annað. Við þurfum öll stundum hjálp og við getum öll stundum hjálpað,“ segir Haraldur.

Hægt er að lesta ítar­legt við­tal Stundarinnar við Harald hér.