Haraldur Þorleifsson, stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno og fálkaorðuhafi, greindist með Covid-19 á dögunum eins og svo margir aðrir Íslendingar.
Haraldur er tvíbólusettur og hefur þar að auki fengið örvunarskammt þannig að einkennin urðu ekki jafn slæm og þau hefðu getað orðið. Haraldur segir frá því á Twitter að hann sé í áhættuhópi og því berskjaldaðri en margir aðrir þegar kemur að mögulegum afleiðingum kórónuveirunnar.
„Ef ég hefði fengið veiruna fyrir tveimur árum eru góðar líkur á að afleiðingarnar hefðu orðið alvarlegar,“ segir hann. Hann segir að smitið nú hafi haft töluverð áhrif á hann en það sé bólusetningunum að þakka að veikindin urðu ekki verri.
Hann sendir svo skilaboð til fylgjenda sinna:
„Látið bólusetja ykkur ef þið getið, farið varlega og takið þetta alvarlega.“
I have underlying health issues that make me vulnerable to covid.
— Halli (@iamharaldur) January 2, 2022
If I had gotten it two years ago there is a good chance it could have turned serious.
It still knocked me out but the vaccinations made it bearable.
Get vaccinated if you can, stay safe and take this seriously.