Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno og fyrrverandi starfsmaður Twitter, hefur svarað Elon Musk, eiganda Twitter og næstríkasta manni heims. Fréttablaðið fjallar um þetta.
Haraldur og Musk hafa átt í miklum orðaskiptum vegna starfsloka þess fyrrnefnda hjá Twitter eins og Hringbraut fjallaði um í morgun.
Allt hófst þetta þegar Haraldur ávarpaði Musk og óskaði eftir svörum vegna starfslokanna. Viðbrögð Musks vöktu talsverða athygli og brást hann til dæmis við með tveimur hláturtáknum þegar Haraldur útlistaði við hvað hann hefði starfað hjá Twitter.
Musk hélt svo áfram að tjá sig um málefni Haraldar á Twitter í morgun en það gerði hann undir Twitter-færslu athafnamannsins Alex Cohen sem birti skjáskot af samskiptum þeirra Musks og Haraldar og sagðist hafa skemmt sér konunglega við lesturinn.
Musk lagði orð í belg undir færslu Cohen og sagði meðal annars að raunin sé sú að Haraldur hafi ekki unnið neitt. Musk talaði svo um að Haraldur hafi komið með þá „afsökun“ að vegna fötlunar gæti hann ekki skrifað en á sama tíma sé hann að skapa „storm“ á Twitter.
„Ég get ekki sagt að ég beri mikla virðingu fyrir því,“ sagði Musk sem hélt svo áfram: „En var hann rekinn? Nei, það er ekki hægt að reka þig ef þú í fyrsta lagi vannst ekki.“
Nú hefur Haraldur svarað Musk fullum hálsi á Twitter þar sem hann fer meðal annars yfir sögu sína og fötlun.
„Sjúkdómurinn hefur margvísleg áhrif á líkama minn. Leyfðu mér að nefna dæmi,“ sagði hann og benti á að hann hafi byrjað að nota hjólastól þegar hann var 25 ára, eða fyrir 20 árum. Fæturnir hafi farið fyrst en sjúkdómurinn svo farið að hafa áhrif á allan líkamann. Sagðist hann þurfa hjálp við að fara í og úr rúminu og við að nota klósettið. Þá hafi verið erfitt að sætta sig við það þegar handleggirnir fóru líka að missa máttinn.
„En maður notar bara þau spil sem lífið gefur manni,“ sagði Haraldur sem minntist einnig á fjölskyldu sína. Haraldur fer svo yfir þá miklu vinnu sem hann lagði á sig þegar hann stofnaði fyrirtækið Ueno sem síðan var selt til Twitter. Hann hafi ekki gert líkama sínum neinn greiða.
„En þessi mikla vinna skilaði sér og fyrirtækið varð mjög farsælt. Við stækkuðum hratt og græddum peninga,“ segir hann meðal annars. Eftir sjö ára starf segist Haraldur hafa verið orðinn þreyttur og eftir vandlega íhugun hafi verið ákveðið að selja fyrirtækið til Twitter.
Haraldur segir að út frá peningalegu sjónarhorni hafi þetta ekki verið besta ákvörðunin. Fyrirtæki hans hafi verið að græða mjög mikið af peningum og tilboðið frá Twitter vissulega getað verið hærra miðað við það.
Haraldur svarar svo ummælum Musk þess efnis að Haraldur hafi komið með þá „afsökun“ að hann gæti ekki skrifað, en samt gæti hann búið til „óveður“ á Twitter.
Segist Haraldur hafa sagt mannauðsdeild Twitter að hann gæti ekki setið lengi við og skrifað án þess að fá krampa í hendurnar. Hann gæti þó setið og skrifað í eina eða tvær klukkustundir í senn. Segir Haraldur að þetta hafi ekki verið vandamál áður en Musk keypti Twitter, enda hafi starf hans þá verið að leiðbeina öðrum innan fyrirtækisins.
Haraldur skýtur svo á Musk í lokin og segist hafa gleymt að nefna eitt. Hann hefði lesið að Musk gæti sjálfur ekki einu sinni farið einn á klósettið.
„Mér þykir það leiðinlegt og ég þekki þá tilfinningu. Eini munurinn er sá að ég get ekki farið á klósettið vegna fötlunar minnar en þú ert hræddur um að einhver ráðist á þig meðan þú kúkar.“