Haraldur Ingi og Elon Musk í ótrúlegum samskiptum á Twitter í gærkvöldi

Elon Musk, eigandi Twitter og stofnandi Teslu, svaraði Haraldi Inga Þorleifssyni, stofnanda Ueno og fyrrverandi starfsmanni Twitter, í gærkvöldi.

Haraldur ákvað að ávarpa Musk á Twitter eftir að hafa gengið erfiðlega að fá svör við spurningum sínum um uppsögn sína. Sagði hann að fyrir níu dögum hefði vinnuaðgangi hans og um 200 annarra starfsmanna Twitter verið lokað. Starfsmannastjóri Twitter gæti ekki staðfest hvort Haraldur væri enn starfsmaður og þá hefði Musk sjálfur ekki svarað tölvupóstum. Með því að ávarpa hann á Twitter væru ef til vill líkur á að hann gæti fengið svör. Óhætt er að segja að Haraldur hafi náð athygli Musks.

Fréttablaðið fjallar um þetta og birtir dæmi um samskipti þeirra á Twitter í gærkvöldi og í nótt.

Elon Musk spurði Harald meðal annars hvaða verkefnum hann hefði sinnt. Haraldur útlistaði það og kallaði Musk eftir frekari upplýsingum um ákveðin verkefni, til dæmis varðandi svokallaða SaaS-samninga. Haraldur svaraði því samviskusamlega en Musk brást við með tveimur hláturtáknum – hvað sem það átti að merkja.

Haraldur fór svo yfir þessi samskipti í nótt og tók þau saman í færslum á Twitter-síðu sinni.

Haraldur tók þessi samskipti saman í nótt og sagði meðal annars: „Hann spurði mig hvað ég hefði unnið við. Þegar ég sagði honum það hló hann. Sem ég skil, því ég er frekar fyndinn.“

Haraldur sagðist svo loksins hafa fengið tölvupóst frá starfsmannastjóra Twitter sem hafi sagt honum að hann væri ekki lengur með vinnu hjá Twitter. „Það er allt í góðu og eitthvað sem gerist oft. Fyrirtæki láta fólk fara og þau hafa rétt á því. Vanalega segja þau samt starfsfólki frá því,“ sagði hann og bætti við að næst á dagskrá væri að komast að því hvort Twitter myndi borga honum það sem fyrirtækið skuldar honum samkvæmt samningi.

„Eða mun @elonmusk, einn ríkasti maður heims, reyna að komast undan því að borga? Fylgist með,“ sagði Haraldur.

Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins en þar má sjá samskipti þeirra Haraldar og Elon Musk.