Haraldur Benediktsson hefur ákveðið að þiggja 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þetta staðfestir hann í samtali við Skessuhorn.is. Hann stígur þar með í spor Brynjars Níelssonar sem hætti við að hætta á dögunum.
Haraldur hafði áður sagst ekki ætla að þiggja sæti á listanum nema hann yrði oddviti. „Það getur ekki verið gott fyrir nýjan oddvita að hafa þann gamla í aftursætinu,“ sagði hann í samtali við Bæjarins Besta.
Í prófkjörinu fór Þórdís Kolbrún með sigur úr býtum í 1. sæti listans. Haraldur endaði í því öðru og nú ljóst hann þiggur sætið. Hann segist hafa viljað hugsa sinn gang, heyra í flokkforystunni og baklandi sínu. Hann segir fjölmarga hafa skorað á sig að halda 2. sæti.
„Ég get því ekki litið framhjá þeirri staðreynd að þrátt fyrir allt virðist ennþá vera eftirspurn eftir störfum mínum á þingi. Ég get því upplýst að ég lýsi mig tilbúinn í framboðsslaginn,“ segir Haraldur í samtali við Skessuhorn.