Haraldur: Djammað til morguns í heima­húsum – Ó­skemmti­legt and­rúms­loft við lokun skemmti­staða

Haraldi Axel Gunnars­syni, fram­kvæmda­stjóra Hreyfils, þætti skyn­sam­legt að af­létta skemmtana­banni. Í sam­tali við Morgun­blaðið í dag segir Haraldur að þegar lokað er í bænum virðist leiðin liggja í heima­partý.

Skemmti­stöðum er gert að loka klukkan 23 á kvöldin en Haraldur telur að það hafi ekki komið í veg fyrir skemmtana­hald – skemmtanaglaðir Ís­lendingar finni sér þá aðrar leiðir.

„Það er mikill akstur þegar djamminu lýkur klukkan 23 og svo myndast mikil törn í tvo tíma eftir það. Af skemmti­stöðum virðist leiðin yfir­leitt liggja í partí í heima­húsum. Að þeim loknum er fólki skutlað til síns heima,“ segir Haraldur við Morgun­blaðið og bætir við að svo virðist vera sem lokun skemmti­staða klukkan 23 ýti undir verri drykkju.

„Ég hef heyrt að fólk sé ölvað snemma og það sé í tals­vert meiri kapp­drykkju en áður. Fólk hættir síðan ekki að drekka þegar stöðunum er lokað heldur fer annað og heldur á­fram,“ segir Haraldur.

Stein­þór Helgi Arn­steins­son, einn af eig­endum Röntgen, sagði svipaða sögu í Síð­degis­út­varpinu á Rás 2 í vikunni. „Leiðin­lega trendið sem er búið að vera undan­farið er að það er orðin svo­lítið ölvun þarna rétt fyrir lokun og það myndast ekki alveg nógu gott and­rúms­loft í mið­bænum þegar er lokað klukkan 23. Það er keppni um leigu­bíla og allir að fara í eftir­partý,“ sagði Stein­þór.

„Að ein­hverju leyti minnir þetta á á­standið þegar lokað var klukkan 3 og allir söfnuðust niður í mið­bæ,“ sagði hann. Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hefur bent á að mikil nánd sem stundum fylgir skemmtana­lífinu sé ó­æski­leg í því á­standi sem nú er. Þess vegna sé skemmti­stöðum og börum gert að loka klukkan 23.

Stein­þór benti á móti á að nú þegar væri mikil nánd milli fólks í mið­bænum meðan staðir eru opnir. Veitinga­staðir og barir væru þétt setnir meðan á opnunar­tíma stendur og því haldi þessi rök tæpast. Það sé í raun engum til hags­bóta að stöðum sé lokað klukkan 23.