Haraldur býður sig fram í næsta verkefni: „Þið kannski hafið mig í huga“

Haraldur Þorleifsson, manneskja ársins 2022 hjá hlustendum Rásar 2, kom fram í Skaupinu á gamlárskvöld og þótti standa sig með mikilli prýði. Haraldur, sem stofnaði fyrirtækið Ueno og seldi það svo til Twitter, virðist vera opinn fyrir því að leika meira í framtíðinni.

Haraldur birti færslu þess efnis á Twitter þar sem hann sagði:

„Sett þetta út í kosmósið: Kæru leikstjórar og casting fólk, ég vil endilega leika meira. Ég væri sérstaklega til í að vera vondi kallinn. Þið kannski hafið mig í huga ef þið eruð með prufur!“

Fylgjendur Haraldar eru á því að hann geti vel átt framtíðina fyrir sér í leiklist og segir einn að hann og Ólafur Darri gætu gert það gott saman í næstu seríu af Ófærð. Annar segist sjá Harald fyrir sér í næsta krimma Baltasar Kormáks.