Haraldur býðst til að borga flugmiða og gistingu fyrir Jón til Grikklands

Haraldur Ingi Þorleifsson, athafnamaður hefur boðist til að borga flugmiða og gistingu fyrir Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra svo hann geti kynnt sér aðstæður flóttamanna á Grikklandi.

Ekki er víst hvort Jón muni taka tilboði Haralds sem verður þó að teljast rausnarlegt.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu kom Jón Gunnarsson fyrir allsherjar- og menntamálanefnd í dag til þess að svara spurningum varðandi aðgerðir lögreglu þegar 15 einstaklingar voru fluttir úr landi.

Þar sagði hann það öruggt að fólk sem sent væri til Grikklands endaði ekki á götunni.

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata telur að Jón hafi einungis endurtekið rangfærslur sem áður hafi komið fram á fundinum.

„Því er haldið fram núna að það sé ekki rétt að fólk sé á götunni en það liggja fyrir um þetta opinberar og áreiðanlegar skýrslur opinberra aðila. Þetta er ekki eitthvað sem við eigum að vera þræta um, það er svolítið leiðinlegt hvernig þeim hefur tekist að gera það að einhverju vafamáli í þessari umræðu. Það var kannski svolítið leiðinlegt,“ sagði Arndís Anna.

Það væri því mögulega best fyrir Jón að þiggja boð Haralds og sjá sjálfur hvernig aðstæður flóttamanna í Grikklandi eru raunverulega.