Haraldur Þorleifsson, stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno sem hann seldi til Twitter fyrr á þessu ári, biður barnafólk sem hefur lítið á milli handanna til að hafa samband við sig og senda sér kennitölu og reikningsnúmer.
„Jólin eru fallegur tími. En þau geta líka verið erfið fyrir mörg okkar. Sérstaklega fyrir barnafólk með lítið á milli handanna. Við viljum öll gleðja börnin okkar á þessum tíma. Ef þú ert í þessum hópi, sendu mér endilega DM hérna með kennitölu og reiknnr. Gleðileg jól,“ segir Haraldur í færslu á Twitter sem vakið hefur mikla athygli.
Haraldur hefur heldur betur látið gott af sér leiða á árinu því hann var forsprakki verkefnisins Römpum upp Reykjavík. Var markmiðið að setja upp hundrað rampa fyrir fólk í hjólastól við verslanir og veitingahús í borginni. Þá er skemmst að minnast þess í sumar þegar hann bauðst til að borga allan lögfræðikostnað þeirra sem kynnu að verða lögsóttir af tónlistarmanninum Ingólfi Þórarinssyni.
Haraldur sagði frá því á Twitter fyrr á þessu ári að sjálfur hefði hann verið barn efnalítilla foreldra. Hann glímir sjálfur við fötlun en hefur ekki látið hana aftra sér frá því að elta drauma sína og ná þeim. Við sama tilefni tilkynnti hann að allir skattar af sölu Ueno til Twitter yrðu greiddir á Íslandi.
Jólin eru fallegur tími. En þau geta líka verið erfið fyrir mörg okkar.
— Halli (@iamharaldur) December 23, 2021
Sérstaklega fyrir barnafólk með lítið á milli handanna. Við viljum öll gleðja börnin okkar á þessum tíma.
Ef þú ert í þessum hópi, sendu mér endilega DM hérna með kennitölu og reiknnr.
Gleðileg jól.