„Ég kalla eftir að samfélag hundaeiganda virði reglur og virði eignarrétt okkar bænda á löndum okkar,“ segir Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Haraldur, sem er bóndi á Vestri-Reyni í Borgarfjarðarsýslu, birti færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi sem vakið hefur talsverða athygli.
„Í gærkvöldi hafði lögreglan samband og lét okkur vita að tveir husky hundar hefði ráðist á fé og helsært ásetningsgimbur, frá okkur. Það var ekkert annað að gera að aflífa skepnuna - hún var hreinlega tætt niður,“ segir Haraldur sem kveðst skrifa færsluna sem bóndi og hundaeigandi sjálfur.
„Ég vil taka fram að ég þakklátur hundaeigandanum að láta vita af atvikinu. Það er í fyrsta sinn í meira en 30 ár - sem það er þó gert. Allavega gagnvart okkur. En við erum sem betur fer ekki með mörg svona tilvik á ári. Þetta hefur valdið mun meiri skaða hjá nágrönnum okkar. Lausaganga hunda er mikið vandamál hér. Íbúar í þéttbýlinu stunda að viðra hunda sína innan girðingar hjá bændum. Það skiptir engu máli þó skilti séu og lausaganga þeirra þar bönnuð.“
Haraldur bendir á að Akranesbær hafi svæði fyrir hunda en það virðist ekki vera nóg. Umferð hundaeiganda og lausaganga hunda sé stöðugt að aukast og ófriður vegna þess.
„Við höfum hreinlega ekki lengur yfirráð yfir stórum hluta af jörð okkar - eða getum nýtt hana til beitar. Þetta var alls ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist. Þegar komist er í færi við hundaeigendur sem þetta gera er oftar ekki verið með stæla -frekar en að sjá að sér. Því miður eru þeir mun færri sem sjá að sér.“
Haraldur segir að þetta sem gerðist í fyrradag sé ekkert einsdæmi og í gegnum árin hafi þeir sem eiga fé orðið fyrir barðinu á þessu.
„Fé er sært -það er hreinlega drepið -eða það hrekst í skurði og drukknar. Þeirra bíður kvalafullur dauði - ef ekki sést í tíma, að skepnan sé særð,“ segir Haraldur sem beinir ákveðnum tilmælum til hundaeigenda.
„Ég kalla eftir að samfélag hundaeiganda virði reglur og virði eignarrétt okkar bænda á löndum okkar. Það er hræðilegt að vera eigandi hunds sem veldur slíku - vissulega getur fólk lent í því. En verst af öllu er að vera svo skeytingarlaus að láta sér í léttu rúmi liggja afleiðingar. Skeyta engu um að farið er um svæði sem aðrir eiga og hafa afkomu sína af því að nytja það.“
Haraldur spyr hvort það fari að verða tímabært að kalla eftir mun harðari aðgerðum gegn slíku háttalagi. „Þess þarf ekki ef hundaeigendur bera gæfu til að þekkja ábyrgð sína.“