Haraldur Ingi Þorleifsson, athafnamaður og stofnandi stafræna hönnunarfyrirtækisins Ueno, segir vel hægt að bylta íslenska bankamarkaðnum.
Sparisjóðurinn Indó opnaði fyrir skemmstu og geta landsmenn nú opnað reikning hjá sjóðnum. Fréttablaðið greindi frá því þann 1. febrúar síðastliðinn að átta þúsund viðskiptavinir væru nú þegar komnir yfir til Indó.
Haraldur benti á það á Twitter í gærkvöldi að innlánsvextir á veltureikningum hjá Indó hefðu hækkað í gær um 0,5% og séu nú 3%.
„Sambærilegir vextir hjá öðrum bönkum eru 0,4-0,75%. Indó er með öðrum orðum með 4-8 sinnum betri vexti en hinir bankarnir á þessum reikningum,“ sagði Haraldur í færslu sinni.
Hann bætti svo við í annarri færslu sem tengdist fyrri færslunni.
„Það er hægt að bylta íslenska bankamarkaðinum, hætta að rukka öll þessi aukagjöld, borga miklu betri vexti og bæta þjónustu. Það þarf ekki risastór hús á besta stað, eða bónusa fyrir toppana. Það þarf bara lítinn kraftmikinn hóp af fólki sem vill búa til réttlátara kerfi.“
Það er hægt að bylta íslenska bankamarkaðinum, hætta að rukka öll þessi aukagjöld, borga miklu betri vexti og bæta þjónustu.
— Halli (@iamharaldur) February 8, 2023
Það þarf ekki risastór hús á besta stað, eða bónusa fyrir toppana.
Það þarf bara lítinn kraftmikinn hóp af fólki sem vill búa til réttlátara kerfi. https://t.co/AM9XaYiOJU
Rétt er að taka fram að Haraldur er hluthafi í Indó.