Hans nokkur lenti í því að Klapp-kortið hans virkaði ekki þegar hann ætlaði að fara um borð í strætisvagn í höfuðborginni, varð það til þess að hann svindlaði sér um borð. Hann er ekki par sáttur ef marka má færslu hans á Twitter:
„Svindlaði mér í strætó í fyrsta skipti síðan ég var 16 ára. Þetta nýja Klapp app sem átti að koma í veg fyrir svindl er svo mikið drasl að það er búið að breyta heldri manni eins og mér í glæpamann. Money well spent.“
Athygli vekur að dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, Sigríður Rut Júlíusdóttir, tók eftir færslunni hans Hans. Vekur enn meiri athygli að hún segir þetta vera í lagi:
„Það er allt í lagi. Klappið mitt með mánaðarkortinu mínu hætti að virka þannig að ég keypti einstaklingsmiða á strætó appinu í staðinn,“ skrifar hún. „Fattaði svo að klappið mitt var löngu farið að virka aftur og ég því búin að borga tvöfalt allan mánuðinn. Ég greiddi þannig þitt fargjald í raun.“
Það er allt í lagi. Klappið mitt m mánaðarkortinu mínu hætti að virka þannig að ég keypti einstaklingsmiða á strætó appinu í staðinn. Fattaði svo að klappið mitt var löngu farið að virka aftur og ég því búin að borga tvöfalt allan mánuðinn. Ég greiddi þannig þitt fargjald í raun.
— Sigríður Rut Júlíusdóttir (@RutJul) March 16, 2022