Hannes sýndi Ásgeiri stuðning og deildi færslu hans

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, virðist finna til ákveðinnar samúðar með Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. Ásgeir hefur setið undir ásökunum undanfarna daga um að hafa nýtt sér bók Bergsveins Birgissonar við gerð bókar sinnar, Eyjan hans Ingólfs.

Ásgeir sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna málsins á Facebook þar sem hann sagði bækur þeirra Ingólfs afar ólíkar hvað varðar nálgun, umfjöllun og niðurstöður. Sagðist Ásgeir aldrei áður hafa verið vændur um stuld en væri það ákaflega heimskulegt stöðu hans vegna.

Segja má að Hannes hafi um margt verið í svipaðri stöðu og Ásgeir og sýni kannski hluttekningu með honum. Eins og kunnugt er var Hannes dæmdur í Hæstarétti árið 2008 fyrir brot á höfundarrétti við skrif á ævisögu Halldórs Laxness. Áður hafði hann verið sýknaður í héraðsdómi.