„Hræðilegt að sjá þessa árás á þinghúsið í Washington-borg. Fyrir neðan allar hellur, svipað og þegar Sólveig Anna og félagar réðust inn í Alþingishúsið forðum, þótt auðvitað sé þetta miklu alvarlegra, því að spellvirkjarnir vestra eru fleiri og geta meira,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í færslu á Facebook. Vísar hann þar í mál níumenninganna, þar sem Sólveig Anna var á meðal. Hún er í dag formaður Eflingar.
Mál níumenninganna vakti mikla athygli á sínum tíma, þá voru níu mótmælendurnir í Búsáhaldabyltingunni ákærðir fyrir árás á Alþingi. Þau voru öll sýknuð af þeim ákærulið, en tveir voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og tvær fengu sektir, þar á meðal Sólveig Anna sem var dæmd fyrir að hindra þingvörð í starfi.
Hannes segir þetta mál minna sig á óeirðirnar í Bandaríkjunum í gær, þar sem hópur fólks réðist inn í þinghúsið. Fjórir létust í árásinni. „Við eigum að leysa mál friðsamlega, ekki með ofbeldi. Við hljótum að fordæma alla ofbeldisseggi. Þingið á að vera látið í friði, jafnt í Bandaríkjunum og á Íslandi.“
Færsla Hannesar hefur vakið mikla athygli meðal þeirra sem taka undir hana er Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar, og Jón Magnússon, lögmaður.
Ekki eru þó allir sáttir, Einar Steingrímsson, prófessor í stærðfræði í Glasgow, segir málið ekki sambærilegt: „Sólveig Anna og félagar réðust ekki inn í þinghúsið. Þau gengu þar inn til að neyta stjórnarskrárvarins réttar síns, að fylgjast með umræðum á þingi af þingpöllum. Ekki segja ósatt, Hannes Hólmsteinn.“
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfus, setur málið í samhengi við Búsáhaldabyltinguna á Facebook. Birtir Elliði mynd Morgunblaðsins af mótmælunum á Austurvelli 2009 og segir: „Aðför að þinghúsum er aðför að lýðræði og frelsi. Það er ömurlegt og til ævarandi skammar þegar ráðist er gegn lykilstofnunum samfélagsins og réttkjörnum handhöfum valds. Á það bæði við um þegar ofbeldi er beitt til að koma þeim frá og þegar reynt er að koma í veg fyrir að réttkjörnir valdhafar komist að.“
Sólveig Anna hefur sjálf miklar skoðanir á árásinni í gær og segir á Facebook: „Fasista-múgur ræðst til inngöngu í þinghúsið. Á þeim er tekið svona svipað og ef þau væru að troðast í röðinni í Disney World. Svo fá þau að fara heim, og munu svo kaupa sér boli sem á stendur "I defended liberty" eða "I made America great again" og halda áfram að kaupa sér byssur og kjósa fasista í Repúblíkanaflokknum. Löggan gerir ekkert við þau,“ segir hún.
„Þið sjáið hversu hugrakkir meðlimir innrásarliðsins eru, þau vita að þau þurfa ekki að vera hrædd við að vera barin í hausinn eða skotin, í landi þar sem að svart fólk er skotið af löggunni fyrir nákvæmlega engar sakir. Íslenska hægrið hefur haldið því fram að kerfisbundinn rasismi sé ekki vandamál í Ameríku. Megi þeir lygarar læra að skammast sín.“