Hannes minnist kvöldstundar með einum frægasta grínista Bretlands

Flestir ættu að þekkja breska skemmtikraftinn John Cleese, sem er hvað þekktastur sem meðlimur í ódauðlegu grínsveitinni Monty Python.

Stjórnmálafræðiprófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir frá kynnum sínum af Cleese í færslu sem birtist á Facebook í dag.

Hann segir að þeir hafi hist á Frelsishátíðinni, Freedomfest, í borginni Las Vegas í Bandaríkjunum, og segir að nú sé Cleese orðinn ötull verjandi málfrelsis.

Hannes segir að þeir Cleese hafi rifjað upp fyrri kynni, þegar þeir sóttu saman fund í Suður-Englandi.

„Einn kunnasti fyrirlesarinn á Frelsishátíðinni, Freedomfest, í Las Vegas í Nevada (Engjum á Snælandi) var breski gamanleikarinn John Cleese, sem er orðinn ötull verjandi málfrelsis. Ég hitti Cleese að máli í móttöku fyrir nokkra þátttakendur, og við rifjuðum upp, að við sóttum saman málstofu í Suður-Englandi um leikrit Toms Stoppards fyrir mörgum áratugum.“

Hannes bætir við að lokum að hann hafi minnst á fræga íslenska auglýsingu sem Cleese lék í fyrir Kaupþing,

„Ég sagði honum líka, að hann væri þekktur á Íslandi fyrir auglýsinguna um „Kaupthinking“.“

Hægt er að sjá auglýsinguna hér fyrir neðan: