Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, skrifar langa lofgrein í Morgunblaðið í dag um góðvin sinn til margra ára, Davíð Oddsson. Davíð er 75 ára í dag, fæddur 17. janúar 1948.
Í grein sinni, sem þekur heilasíðu í Morgunblaði dagsins, hvar Davíð sjálfur er ritstjóri, fer Hannes um víðan völl og skrifar meðal annars um eftirmál bankahrunsins.
Hann segir það hafa verið með ólíkindum að fyrsta verk ríkisstjórnarinnar sem tók við í febrúar 2009 hafi verið að flæma Davíð Oddsson úr Seðlabankanum ásamt tveimur starfsbræðrum hans.
„Í stað seðlabankastjóranna þriggja réð stjórnin Norðmann einn og braut með því stjórnarskrána, en þar er kveðið skýrt á um það, að embættismenn skuli vera íslenskir ríkisborgarar.“
Hann segir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis árið 2010 hafi verið meingölluð; Davíð hafi margsinnis varað við örum vexti bankanna og hafi undirbúið aðgerðir í kyrrþey.
Í lok greinar sinnar segir hann að Davíð hafi verið – og sé – stærstur í andstreymi.
„Davíð Oddsson hafði verið farsæll og sigursæll forsætisráðherra. Hann hafði þá líka oftast haft góðan byr. En líklega var hann stærstur í hinu mikla andstreymi áranna 2008-2013, þegar hann fann ásamt traustum samherjum leið út úr ógöngum bankanna og tók snarplega þátt í baráttunni gegn yfirgangi útlendinga. Í senn hélt hann þá á lofti sérstöðu íslensku þjóðarinnar, sem vildi ráða sínum málum sjálf, og nauðsynlegri samstöðu hennar með öðrum þjóðum. Honum höfðu dugað vel augun íslensku eins og Sighvati Þórðarsyni forðum.“
Grein Hannesar í Morgunblaðinu.