Hannes líkir bóluefnasamningum Íslands við Icesave-málið

Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að íslensk stjórnvöld hafi leikið stórkostlega af sér í samningagerð sinni við bóluefnaframleiðendur. Hann líkir málinu við Icesave-samningana sem þjóðin felldi í atkvæðagreiðslu.

„Strax og ljóst varð, að þjóðin myndi fella samn­ing Svavars Gests­son­ar, buðu Bret­ar miklu betri kjör, þótt niðurstaðan yrði að lok­um sú, sem við höfðum nokk­ur haldið fram all­an tím­ann, að það hefði ekki verið um neitt að semja, því að ís­lenska ríkið hefði ekki borið ábyrgð á viðskipt­um einkaaðila. Samn­ing­ur Svavars var eins og Sig­urður Már Jóns­son sagði í fróðlegri bók sinni um málið „af­leik­ur ald­ar­inn­ar“,“ skrifar Hannes í Morgunblaðið í dag.

„Sam­an­b­urður­inn á samn­ingi Svavars og síðan þeim, sem Lee Buchheit gerði, nægði til að skera úr um málið. Við hefðum sparað okk­ur hundruð millj­óna í vexti með samn­ingi Buchheits, svo að ekki sé minnst á allt annað. Hér voru mis­tök­in mæl­an­leg: Tveir samn­inga­menn, tvær niður­stöður.“

Ísraelsmönnum hafi gengið betur

Hann heldur svo áfram og segir að samningar íslenskra stjórnvalda um bóluefni séu af svipuðum toga og samningurinn um Icesave. „Svo virðist sem Íslend­ing­ar fái ekki nægt bólu­efni fyrr en seint á ár­inu. Stjórn­völd hafa leikið stór­kost­lega af sér. Heil­brigðisráðherra tók aðeins núm­er á biðstofu Evr­ópu­sam­bands­ins og ætlaði að bíða þar auðsveip eft­ir því, að nafn Íslands yrði kallað upp. Hún virðist ekki haft áhuga á að nýta sér einkaaðila, sem voru boðnir og bún­ir til aðstoðar.“

Hann furðar sig á því að Ísraelsmenn hafi á sama tíma náð að bólusetja fleira fólk en Íslendingar eru. „Hvað höfðu samn­inga­menn þeirra, sem samn­inga­menn Íslend­inga höfðu ekki? Hér eru mis­tök­in mæl­an­leg: Tvær þjóðir, tvær niður­stöður,“ skrifar Hannes.

„Við höfðum öll skil­yrði til að losna úr þess­ari prísund á fyrstu mánuðum árs­ins 2021. Í Ices­a­ve-mál­inu átti að hneppa okk­ur í ára­tuga skuldafang­elsi. Nú á að loka okk­ur inni fram eft­ir ári eins og við vær­um í Aust­ur-Þýskalandi, og á meðan munu ein­hverj­ir deyja, aðrir smit­ast og fyr­ir­tæki fara í þrot. Það tókst að leiðrétta af­glöp­in í Ices­a­ve-mál­inu. Von­andi tekst það líka í Covid-19-mál­inu.“