„Þessi færsla lýsir miklum misskilningi. Það er hlutverk ríkis að láta borgara sína hafa forgang um þau gæði, sem það getur úthlutað. Annars væri það tilgangslaust,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Hannes skrifar athugasemd undir færslu Guðmundar Andra Thorssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Facebook í gærmorgun, en þar tjáði Guðmundur sig um þau tíðindi að Ísraelsmenn hefðu tryggt nægt bóluefni gegn COVID-19 til að bólusetja alla landsmenn.
„Víða sér maður fólk dásama Ísraelsríki fyrir góða frammistöðu við að bólusetja sitt fólk. Sitt fólk. Bara sitt fólk. Palestínuþjóðin á herteknu svæðunum fær ekkert. Sjaldan hefur maður séð jafn svart á hvítu það ranglæti sem þetta ríki er reist á,“ sagði Guðmundur í færslu sinni og tóku margir undir.
Hannes Hólmsteinn er langt því frá sammála Guðmundi Andra og segir að Palestínumenn hafi sína stjórn sem flýtur í gjafafé frá útlöndum. Því miður fari mestallt í spillta stjórnmálamenn þar.
„Sú stjórn hefði átt að útvega Palestínumönnum bóluefni. Þetta er mælskubrella hjá þér til að leiða athyglina frá því, að heilbrigðisráðherra (gamall samherji þinn í Icesave-málinu) gætti hagsmuna Íslendinga ekki nógu vel og að í ljós er komið, að ESB, sem þú hefur ofurtrú á, hefur ekki ráð undir hverju rifi.“
Staksteinar Morgunblaðsins í dag eru lagðir undir færslu Guðmundar Andra og svar Hannesar og þarf ekki að koma á óvart að Staksteinar taka undir með Hannesi.
„Flestum er orðið ljóst að Evrópusambandið klúðraði pöntunum á bóluefni sem það tók að sér fyrir aðildarríkin og Ísland, sem hengdi sig, að því er virðist hugsunarlaust og án annarra ráðstafana, aftan í þessa misheppnuðu aðgerð. Það hlýtur að fara að líða að því að ráðherrann viðurkenni mistökin. Oftast er það fyrsta skrefið í þá átt að bæta ráð sitt,“ segir í Staksteinum dagsins.
Víða sér maður fólk dásama Ísraelsríki fyrir góða frammistöðu við að bólusetja sitt fólk. Sitt fólk. Bara sitt fólk....
Posted by Guðmundur Andri Thorsson on Mánudagur, 11. janúar 2021