Síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í gær, í þáttunum er fiskveiðistjórnunarkerfið fyrirferðarmikið og sýnt í grófum dráttum hvernig það kom til. Margir hafa notað tækifærið til að gagnrýna kvótakerfið, þar á meðal Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi sem segir þættina sambærilega Narcos og líkir Þorsteini Má Baldvinssyni við El Chapo Guzmán í Narcos Mexico.
Segir hann að næsta þáttaröð Verbúðarinnar ætti að fylgja Samherjamönnum:
„Í raun eru glæpur og svik Þorsteins Más svo stórkostleg að næstu tvær seríu ættu að fylgja honum. Gallinn er að hann er svo einvíð persóna að hann gæti drepið fólk úr leiðindum, hann er nánast eins og Ágirndin ber, allt annað hefur brunnið upp,“ segir Gunnar Smári. „Kannski verða íslenskra kvótakóngaseríur eins frásagnir af Mexíkóskum og Kólumbískum eiturlyfjasölum að sérstakri undirgrein sjónvarpssería, eins og myndir um ítölsku mafíuna, útlaga í villta vestrinu og einkaspæjara í LA eru innan kvikmyndasögunnar.“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir umræðurnar um kvótakerfið vera á villigötum:
„Þið eruð úti á túni. Á Íslandi er einhver jafnasta tekjudreifing í heimi! Og munurinn á sjávarútvegi hér og víðast annars staðar er, að hér er hann arðbær og sjálfbær, en annars staðar er hann rekinn með tapi.“