Hannes Hólmsteinn kemur lögreglunni til varnar: „Auðvitað verður hún að kanna málið“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir ekki við lögregluna að sakast vegna afskipta hennar í tvígang af saklausum ungum dreng í leitinni að strokufanganum Gabríel Douane Boama.

Lögregla hafði afskipti af drengnum saklausa fyrst í strætó í fyrradag og svo aftur í bakaríi í gær þar sem hann var með móður sinni. Virðist vera sem almennur borgari hafi haft samband við lögreglu í gær vegna gruns um að þar væri strokufanginn kominn.

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, skrifaði hugrenningar um málið á Facebook-síðu sína í gær.

„Við köllum það rasisma þegar fólk sér ekki einstaklinginn fyrir framan sig, aðeins hörundslit, og fer svo í framhaldinu að fabúlera í hausnum á sér um eiginleika viðkomandi. Fólk sem er brúnt á hörund er gert að fulltrúa fyrir alla þá sem eru brúnir á hörund (sem er nánast allt mannkynið), hvaðan sem það kemur, hvaða aðstæður sem það býr við eða hefur alist upp við og hvaða mann sem það hefur að geyma,“ sagði Guðmundur Andri í færslunni og vísaði í málið sem var til umfjöllunar í gær.

Bætti hann við að rasismi hefði alls staðar skelfilegar afleiðingar í för með sér þar sem hann nær að breiðast út að ráði eða verða að viðurkenndri hugmyndafræði.

„Hann leiðir til ranglætis, ofsókna, glæpa og eitrar allt andrúmsloft. Rasismi er nokkurn veginn heimskulegasta hugmynd í heimi. Í siðuðu samfélagi á 16 ára piltur ekki að hafa á tilfinningunni að fólk líti á hann sem glæpamann vegna útlits hans, aldurs og kyns.“

Hannes Hólmsteinn birti athugasemd undir færslunni og sagði málið í raun einfalt.

„Þessi málflutningur er fáránlegur. Hvað á lögreglan að gera, þegar henni berast ábendingar um, að sést hafi til manna, sem svara til lýsingarinnar á strokufanganum? Auðvitað verður hún að kanna málið.“

Guðmundur Andri svaraði að bragði og sagðist vona að Hannesi fyndist lýsingin á rasisma ekki vera „fáránlegur málflutningur“.

„Fyrst og fremst á fólk ekki að rjúka til og hringja inn þó að það sjái tilsýndar ungan mann með brúnt hörund. Og svo hlýtur lögreglan að geta kannað málið á varfærnari og tillitssamari hátt en hún virðist hafa gert.“