Hannes fengið nóg af partýstandinu: „Heimsmet í svalli, gubbupollum og slagsmálum“

Hannes Sigurðsson, íbúi í miðbæ Reykjavíkur, segir að engin sómakær borg í heiminum nema Reykjavík leyfi veitingamönnum að blasta tónlist úti á götu og bareigendum að spila dúndrandi dansmúsík fram til hálf fimm á morgnana, í miðri íbúabyggð, algjörlega óáreittir.

Hannes varpar þessari skoðun sinni fram í aðsendri grein í Fréttablaðinu, en eins og Hringbraut greindi frá á dögunum fengu íbúar í miðborg Reykjavíkur bréf inn um lúguna þar sem fundið var að því að skemmtanalífið væri komið á fullt aftur eftir Covid-faraldurinn með tilheyrandi ónæði fyrir íbúa. Hannes bar ábyrgð á umræddu bréfi og hefur hann nú stigið fram í Fréttablaðinu þar sem hann varpar frekara ljósi á málið.

„Um hverja helgi rignir djammþyrstum Íslendingum, sem vilja sletta ærlega úr klaufunum, niður í miðbæinn með tilheyrandi hávaða, sóðaskap og látum,“ segir Hannes og bætir við að borgaryfirvöld geri ekkert í málinu.

„Nákvæmlega ekkert. Þvert á móti hafa þau leyft þessari ómenningu að grassera og vaða fullkomlega stjórnlaust uppi. Þetta sinnuleysi bitnar ekki aðeins harkalega á langþreyttum íbúum, heldur einnig öllum þeim ferðamönnum sem hreiðrað hafa um sig á þeirri hótel- og gistiheimilanýlendu sem miðborgin er orðin. Þeir sækjast í mannlífið og allt það sem svæðið hefur upp á að bjóða, en þeir eru aftur á móti hundfúlir með að geta ekki fengið að sofa værum svefni fyrir drunum og dynkjum á næturnar,“ segir Hannes og bætir við að gististaðirnir hafi ekki farið varhluta af þessari óánægju, enda kvarti gestir statt og stöðugt undan hávaðanum og krefjast þess oft að fá ríflegan afslátt vegna ónæðisins.

„Borgarstjórnin hefur miklar áhyggjur af bílamengun og hvernig draga megi úr henni með öllum ráðum, en hávaðamengun er greinilega of ósýnilegt fyrirbæri til að vert sé að gefa henni gaum. Það virðist ekki koma borginni við frekar en önnur umkvörtunarefni íbúanna,“ segir Hannes.

Um þau rök að ósáttir íbúar flytji í önnur hverfi segir hann að margir íbúar miðbæjarins hafi búið þar árum og áratugum saman og vilji hvergi annars staðar vera.

„Þeir neita einfaldlega að yfirgefa heimili sín og hrökklast á brott vegna tilætlunarsemi kráareiganda. Allan þennan tíma hafa borgaryfirvöld forðast eins og heitan eldinn að takast á við vandamálið, hvorki sýnt íbúum neinn skilning né gert minnstu tilraun til að finna einhverjar málamiðlanir. Þau virðast eingöngu hafa samúð með veitingamönnum, svo mjög að halda mætti að markmiðið væri að gera Reykjavík að mestu partíborg Evrópu og slá þannig heimsmet í svalli, gubbupollum og götuslagsmálum. Það verður að teljast afar vafasamur heiður.“

Grein Hannesar má nálgast í heild sinni í Fréttablaðinu í dag eða á vef Fréttablaðsins.