Hanna og María segja aðkeyptan kynfræðing og áhrifavald kenna börnum kyrkingar í skólum: „Þarf einhver að láta lífið?“

Kynjafræðikennararnir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir og María Hjálmtýsdóttir segja að skólar hafi brugðist við kalli samfélagsins um aukna kynfræðslu, en það hafi verið gert með því að kaupa inn kynfræðing og áhrifavald sem kenni meðal annars lífshættulegt kyrkingakynlíf. Í grein þeirra á Vísinefna þær engin nöfn en spyrja foreldra:

„Hvernig líst þér á að fá einhvern til að kyrkja barnið þitt? Væri kannski betri hugmynd að fá skólakerfið til að kenna krökkunum okkar að kyrkja hvert annað, svo að þau geri það örugglega rétt? Er ekki stór-sniðugt að benda strákunum á ýmsar leiðir til að útfæra það sem þeir sjá í kláminu, til dæmis að loka öndunarvegi stelpnanna með limnum á sér, ef þeir bara passa að fylgjast með því að hætta örugglega í tæka tíð til að forðast súrefnisskort til heilans?“

Þær segja að opinská umræða um kynlíf sé bráðnauðsynleg en það þurfi að hafa á því skoðun:

„Okkur ber til dæmis skylda til að segja eitthvað þegar aðkeypti kynfræðarinn valsar um allt land og kennir unglingunum okkar að kyrkja hvert annað í nafni kynfrelsis,“ segja þær.

„Okkur ber skylda til að hafa á því skoðun þegar áhrifavaldur fræðir börnin okkar sem eru mörg hver að feta sín fyrstu skref sem kynverur, um hvernig þau geta á sem áhrifaríkastan hátt apað allt eftir sem þau sjá í kláminu sem bókstaflega tröllríður tilveru þeirra, oft með ömurlegum afleiðingum, bara ef þau ,,tala saman og fá samþykki“.“

Þær segja slíkt athæfi hættulegt:

„Kyrkingar, jafnvel þegar þær eru dulbúnar sem kynferðislegur leikur undir nöfnum eins og ,,breath play“, eru lífshættulegar. Þrenging að hálsi getur valdið meðvitundarleysi á örskömmum tíma en óafturkræfar afleiðingar geta komið fram síðar sem leiða í einhverjum tilfellum til dauða, jafnvel þótt engir áverkar séu sýnilegir, sem þeir hættulegustu eru oft ekki.“

Spyrja þær að lokum: „Kynfræðsla er ekki kennsla í að fá sem öfgafyllstar fullnægingar og hún á svo sannarlega ekki að snúast um að kenna börnunum okkar að kyrkja eða láta kyrkja sig. Þarf einhver að láta lífið til að við áttum okkur á því?“