Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar, gerir útboð ríkisins á hlutnum í Íslandsbanka að umtalsefni á Facebook-síðu sinni.
„Er þetta ekki orðið gott? Á þeim rúma mánuði sem liðinn er frá misheppnaðri sölu fjármálaráðherra á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka hafa stjórnvöld sýnt ótrúlega staðfestu í því að hindra nauðsynlega upplýsingagjöf og umræðu,“ segir Hanna Katrín og nefnir nokkur dæmi máli sínu stuðnings:
„Kröfu stjórnarandstöðu um rannsóknarnefnd, sem hefur mun víðari rannsóknarheimildir en Ríkisendurskoðandi - Hafnað!
Kröfu stjórnarandstöðu um að þingið stytti langt páskahlé til að fara ofan í saumana á málinu - Hafnað!
Kröfu stjórnarandstöðu um að þá verði fyrsti þingfundur eftir páskahlé nýttur í umfangsmikla umræðu um málið með þátttöku þeirra þriggja ráðherra sem sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál og sölu banka og hafa verið margsaga um afgreiðslu málsins - Hafnað!
Löngu fyrirhugaður opinn fundur fjárlaganefndar Alþingis með Bankasýslunni sem var á dagskrá núna í dag - Frestað!
Eðlileg og mikilvæg upplýsingagjöf af hálfu einstaka ráðherra til fjölmiðla - Ekki svo mikil!“