Hanna Björg sendir kennurum pillu: Konum hafnað aftur og aftur

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kynjafræðikennari og aktívisti í jafnréttismálum kveðst svekkt með úrslit kosninga til formanns Kennarasambands Íslands í gær og fer hörðum orðum um kennarastéttina. Hanna var þar í framboði en hlaut aðeins 16,22 prósent greiddra atkvæða eða 1.083 í heildina. Hún gerir upp úrslitin í pistli á Facebook síðu sinni.

Hanna setur stórt spurningarmerki við ósigur sinn og segir jafréttisvinnu sína geta verið ástæðuna: Þá er þessum kafla lokið. Ég tapaði. Auðvitað er ég aum, súr og spæld en ég verð fljót að jafna mig. En ég er líka hugsi. Stærsta kvennastétt á Íslandi hafnar konum, aftur og aftur og aftur. Einkum og sér í lagi femíniskri konu. Þar sem ég er helst þekkt fyrir jafnréttisstarf mitt í skólakerfinu, þá hef ég áhyggjur. Hver er staða jafnréttismála í skólum landsins?“ segir Hanna.

Hún segist umdeild en skólakerfið verði að líta framhjá því: „Ég hef sagt og segi enn, skólakerfið er annað hvort hluti af vandanum eða lausninni. Það verður aldrei jafnrétti á Íslandi ef skólakerfið er ekki virkur aðili í þeirri vegferð. Hverjar eru horfurnar? Sú staðreynd að ég er umdeild vegna jafnréttisvinnu minnar – segir okkur að jafnréttishugsjónin er umdeild og hvernig komumst við þá áfram?“ spyr Hanna.

Hún er með skýr skilaboð til þeirra sem kusu sig ekki og sendir þeim tóninn: „Við kennara vil ég segja, ég vona að niðurstaða kosninganna sé ekki vísbending um viðhorf ykkar til innleiðingar jafnréttishugsjónarinnar í skólakerfið. Við ykkur hin vil ég segja – við eigum enn langt í jafnréttislandið og paradísina.“

Hún heldur áfram: „Ég er stolt af kosningabaráttunni minni sem var heiðarleg, einlæg og málefnaleg. Ásýnd baráttu minnar undanfarið má þakka minni hæfileikaríku og heilt yfir framúrskarandi samstarfskonu Unni Gísladóttur. Takk Unnur fyrir alla hjálpina, hvatninguna og öxlina. Án þín hefði ekki verið kosningabarátta hjá þessari konu hér,“ segir Hanna.

Hún þakkar stuðninginn: „Takk innilega þið 1083 kennarar sem kusuð mig, Auðmjúkar þakkir fyrir öll fallegu orðin, einlæga stuðninginn og allt peppið frá fjölskyldunni minni, vinum og þeim sem ég þekki ekki neitt – ég bý að þessu alla ævi.“

Hún endar pistilinn svona: „Ég óska kennarastéttinni þess að vera sameinuð og sterk, og ég óska verðandi formanni farsældar í starfi,“ segir Hanna en ljóst er að hún er langt frá því að vera sátt með kollega sína og atkvæðadreifingu kosninganna.