Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðikennari og forkona Jafnréttisnefndar KÍ, hvetur landsmenn til að sameinast um að innleiða jafnréttishugsjónina í skólakerfið, í nýjum pistli á Vísi.
Hanna Björg hefur vakið athygli fyrir skelegga framgöngu sína í baráttunni gegn misrétti. Í pistli sínum segir hún afhjúpanir á kvenfyrirlitningu, rasisma, fordómum gegn hinseginleika og fötlun daglegt brauð.
„Í gegnum alla tíðina hefur misréttið viðgengist, ekki án andmæla og baráttu heldur vegna kraftmikillar íhaldsemi, valdastöðu og tilkalli til valds ákveðins einsleits hóps og forréttindablindu,“ skrifar Hanna Björg.
Hún segir mál um kynferðisáreiti og -ofbeldi sem komið hafa upp á yfirborðið að undanförnu orðið til þess að óþol fólks fyrir hverskonar misrétti hefur magnast. Niðurstaðan sé sú að við sjáum hvernig fordómafull hatursorðræða, ofbeldishegðun og áreiti hefur viðgengist.
Misréttið er inngróið í menninguna
Því næst rekur Hanna ástæður þess að hún hóf að kenna kynjafræði. Hún hafi annars vegar þekkt íslenskan lagabókstaf frá 1976 sem kveður á um að nemendur á öllum skólastigum skuli fá jafnréttisfræðslu. Hitt hafi verið vissan um að fræðslan virkaði til að breyta viðhorfum.
„Hvernig er viðhorfum viðhaldið? Vissulega í menningunni allri, hefðum, venjum, íhaldssemi, skorti á gagnrýnni hugsun og forréttindablindu. Misréttið er inngróið í menninguna. Við erum öll ofurseld þeirri mótun sem við fáum. Það þarf skarpa sýn, gagnrýna hugsun og hugrekki til að andmæla viðtekinni menningu sem þó er sannarlega skaðleg. Um þetta getur baráttufólk í fortíð og nútíð vitnað.“
Hanna segir lykilinn að viðhorfabreytinguna að finna í kennslustofunni. „Ef uppræta á inngróna og kerfisbundna fordóma, þarf að byrja námið snemma og halda því áfram markvisst í gegnum öll skólastig. Allt nám þarf að stefna í sömu átt, og allir kennarar á öllum skólastigum þurfa að hafa jafnréttisnæmi. Það felur í sér að skilja fordóma og hverskonar misrétti.“
Hún segir mikilvægt að demba ekki kennsluaf þessu tagi á kennara án vandlegs undirbúnings, enda kennarar störfum hlaðnir og ábyrgð þeirra ómæld.
„Í raun þarf að byrja á byrjuninni og hugsa frá núllpunkti – hvað þurfa nemendur að læra? Hvaða hæfni þurfa þau ráða yfir, hvaða þekkingu og viðhorf gerir samfélag jöfnuðar, sanngirnis og réttlætis kröfur um?“
Hanna segir þverpólitíska samstöðu þurfa um aukna jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. „Menntavísindasvið hefur brugðist við kallinu að einhverju leyti, en það þarf að auka þekkingu sem kennarar þurfa að hafa á valdi sínu í því samfélagi sem við búum í hverju sinni. Eins fallegt handverk og bútasaumur er, þá er aðferðin ekki heppileg þegar við mótum stefnu um menntamál. Sameinumst um að innleiða jafnréttishugsjónina í skólakerfið, samfélaginu öllu til heilla.“