Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðingur í Borgarholtsskóla, er allt annað en sátt við þá ákvörðun að Jón Gunnarsson hafi verið skipaður dómsmálaráðherra. Þá er hún ekki sátt við ákvörðun hans að velja sér Brynjar Níelsson sem aðstoðarmann.
Farið er yfir málið í Stundinni og meðal annars rætt við Hönnu Björg sem var áberandi vegna beittrar gagnrýni sinnar á forystu KSÍ í tengslum við kynferðisbrotamál leikmanna.
„Mér finnst þetta eins og kjaftshögg,“ segir Hanna Björg í Stundinni og bætir við að annað hvort séu menn algjörlega úr tengslum við alla samfélagslega umræðu um kynferðisbrot og viðbrögðum viið þeim. „Eða þetta er bara stríðsyfirlýsing,“ segir hún.
Hanna Björg segir að ástæðan séu sú að Jón og Brynjar hafi staðið gegn kvenréttindum.
„Jón var á móti breyttum lögum um þungunarrof, hann var fylgjandi fleiri en einu frumvarpi um að refsa vegna tálmunar. Hann var talsmaður þess að refsa. Þetta var til höfuðs konum sem voru að vernda börnin sín fyrir ofbeldi. Það er alveg hægt að segja það þó frumvarpsfylgjendur myndu ekki túlka það þannig.“
Þá segir hún að Brynjar hafi haldið uppi vörnum fyrir gerendur eða meinta gerendur.
„Hann hefur smættað þolendur og þeirra viðleitni í að tjá sig og gert lítið úr þeim. Hann hefur bara gert lítið úr konum. Það er eins og hann þrífist á því stundum að smætta konur og alla viðleitni þeirra til þess að auka jafnrétti og réttlæti.“
Hanna bætir við í viðtalinu við Stundina að við séum í miðri Metoo-bylgju og verið sé að afhjúpa gerendur. Hún upplifi skipan Jóns og ráðningu Brynjars eins og verið sé að „lemja okkur niður.“
Nánar er fjallað um málið í Stundinni.