Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari og forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, segir eitthvað rangt við að það sjáist varla kona á skjánum án slöngulokka.
Hanna Björg viðrar þessa skoðun sína á Twitter og segir að nánast í hverjum einasta þætti og hverri einustu mynd megi finna konu með slöngulokka.
„Sofandi, skúrandi, lögga, læknir, nemandi, kennari, búðakona, buguð - og með slöngulokka. Óska eftir fjölbreytileika,“ segir hún og virðast margir taka undir með henni.
Einn deilir áhugaverðri grein á vefritinu Vox sem fjallar einmitt um þetta – að allar konur séu með nánast eins greiðslu í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Í greininni er skýringa leitað á þessu og er ein skýringin sögð sú að slöngulokkarnir virka eiginlega við öll tilefni.
„Djöf samsæri - á grundvelli hagræðingar á kostnað kvenna. Feðraveldið talar. Nei – öskrar,“ segir Hanna Björg í athugasemd við linkinn.
Margir taka undir þetta hjá Hönnu og bendir til dæmis ein af fylgjendum hennar á að hversu undarlegt það er að sjá löggur á harðahlaupum á eftir glæpamanni í hælum og með slöngulokka.
„Minnstu ekki á hælana, holdarfarið, varalitinn og augnskuggann. Svona konur finnast ekki í raunheimum, af hverju að sýna þær á skjánum?,“ spyr Hanna Björg.