„Hann er sá sem gerir gys að konum og fötluðum í góðra vina hópi“

„Rasistinn er sem betur fer auðþekkjanlegur og létt að forðast hann,“ segir Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið í dag.

Í grein sinni skrifar hann um rasisma, fordóma og óttann við hið óþekkta sem stundum litar skoðanir og hegðun okkar. Benedikt nefnir nokkur dæmi úr sögunni máli sínu til stuðnings. Þannig hafi margir verið tortryggnir þegar lestarspor teygðu anga sína um sveitir Evrópu, enda höfðu hestarnir þjónað mönnum vel í gegnum aldirnar. Þá hafi ríkisstjórn Íslands bannað tímabundið innflutning á litasjónvörpum árið 1976. Rökin voru allskonar, til dæmis að dagskráin hefði hvergi batnað með tilkomu litasjónvarpa.

„Nú á dögum hendist fólk fram og aftur um heiminn í leit að vinnu, betri lífskjörum eða ævintýrum. Foreldrar ættleiða börn frá fjarlægum heimshlutum. Smám saman verður samsetning samfélagsins flóknari. Tugir þjóða eiga fulltrúa í sjávarbyggðum víða um Ísland. Með breyttum tímum vaknar oft ótti við það óþekkta. Núna hlæjum við öll að búrahættinum í dæmunum hér að framan,“ segir Benedikt og bætir við að vonandi komi sem fyrst sá tími að við hristum hausinn yfir fordómum samtímans.

„Ofbeldi lögreglumanna í Bandaríkjunum gegn svertingjum kristallaðist nýlega í óhugnanlegri árás á George Floyd sem lést eftir grimmilega meðhöndlun laganna varða. Í kjölfarið brutust út óeirðir í mörgum ríkjum og hreyfingin Black Lives Matter varð áberandi. Kænir pólitíkusar kunna vel þann leik vel að spila á tilfinningar hinna óttaslegnu. En í nútímaþjóðfélagi gengur ekki að koma út úr skápunum og segja: „Skjótum þennan svarta skríl.“ Nei, það þarf að pakka skilaboðunum inn í bómull, en ná samt eyrum þeirra óttaslegnu. Stjórnmálamenn sem hafa óvart sýnt sitt rétta eðli og talað niðrandi um svertingja byrja eftiráskýringar oft á því að segja að „sumir af bestu vinum þeirra séu svartir“.“

Benedikt segir að nú séu þeir sem halda að þeir séu enn í felum með sína fordóma búnir að finna upp nýtt slagorð: All Lives Matter.

„Enginn getur verið á á móti því, en baráttan gengur síst út á mikilvægi eins lífs framar öðru, heldur að ekki sé hægt að drepa svertingja eins og þeir séu meindýr. Á Íslandi fiska slægir stjórnmálamenn í þessu grugguga vatni og verða varir, en veiðin er líklega mest marhnútar og afætur, þótt einstaka happadráttur fylgi stundum,“ segir Benedikt sem endar grein sína á þessum orðum:

„Rasistinn er sem betur fer auðþekkjanlegur og létt að forðast hann. Hann talar háðslega um „góða fólkið“, „rétttrúnaðinn“ og „fórnarlambamenningu“. Hann er sá sem gerir gys að konum og fötluðum í góðra vina hópi. Þegar hann útskýrir að „hann sé alls ekki rasisti, en...“ erum við alveg viss.“