Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók par í Heiðmörk upp úr klukkan fjögur í gær vegna gruns um ölvunarakstur. Að sögn lögreglu gistir parið fangageymslur og verða þau yfirheyrð í dag. Með í för var ársgamalt barn þeirra og var það fært í umsjá barnaverndaryfirvalda.
Laust eftir klukkan 19 í gærkvöldi voru tveir einstaklingar handteknir í verslun í Garðabæ eftir að hafa verið handsamaðir af öryggisvörðum verslunarinnar vegna þjófnaðar á vörum. Hinir handteknu, karl og kona, voru látin laus úr haldi lögreglu að yfirheyrslum loknum.
Nóttin var frekar róleg á höfuðborgarsvæðinu. Tveir voru stöðvaðir vegna gruns um ölvunarakstur og ein kona var handtekin vegna líkamsárásar og eignaspjalla. Loks var einn handtekinn vegna hnupls en málið var leyst á vettvangi.