Hallur Hallsson, fyrrverandi blaðamaður Morgunblaðsins, er ekki sáttur við sinn gamla vinnustað ef marka má aðsenda grein sem hann skrifar í blaðið í dag.
Hallur er grjótharður stuðningsmaður Manchester City og segir hann að illa hafi verið vegið að félaginu í umfjöllunum blaðsins að undanförnu.
Eins og þeir sem fylgjast með knattspyrnu vita var Manchester City sýknað af Íþróttadómstól Evrópu í sumar og þá var tveggja ára bann frá Meistaradeild Evrópu fellt niður. Áður hafði Knattspyrnusamband Evrópu fellt býsna þungan dóm yfir City og sitt sýnist hverjum um það.
Hallur gerir fyrirsögn blaðsins um málið að umtalsefni. „Ekki hægt að sanna sekt,“ sagði í frétt og fréttaskýringu Morgunblaðsins í lok júlí þegar blaðamaður féll tvívegis í þá gryfju að virða að vettugi reglur réttarríkis,“ segir Hallur í grein sinni og segir að blaðamaður hafi látið „slúður stjórna penna“ í umfjöllun sinni.
„Skrifin komu í kjölfar leiðara blaðsins á svipuðum nótum 18. júlí uppfullum af fordómum og óvild í garð Manchester City algerlega úr stíl almennt við leiðaraskrif blaðsins. „Forráðamenn Manchester City láta eins og félagið hafi verið hvítþvegið,“ skrifar höfundur. Hvað meinar leiðarahöfundur? Þetta er sérstæð speki. Félagið var sýknað fyrir CAS og 2ja ára bann UEFA fellt niður,“ segir Hallur og bætir við að grunnregla réttarríkisisns sé að menn eða lögaðilar teljist saklausir uns sekt er sönnuð.
„Aldrei í sögu Morgunblaðsins hefur slíkur málflutningur verið viðhafður fyrr en nú. Þótt félagið hafi verið sýknað tönnlast blaðið á því að ekki hafi verið hægt að sanna sekt,“ segir Hallur.
Hann segir að þegar hann starfaði á blaðinu þá hafi það iðulega beðist afsökunar á mistökum ef ekki var farið rétt með, meðal annars tvisvar í hans tilviki.
„Þannig var það undir ritstjórn Matthíasar og Styrmis. Hafa skal það sem sannara reynist og okkur verður öllum á. Mogginn ber út ósannindi um félagslið og þótt í útlöndum sé þá ber að leiðrétta. Hér á landi eru mörg hundruð manns sem halda með félaginu og ég hef gert það frá unglingsárum. Blaðið hefur skrifað niður afrek ManCity á undanförnum árum og til dæmis sagði blaðið ekki frá 100 stiga meti ManCity fyrr en mörgum löngum mánuðum síðar,“ segir Hallur sem þykir illa vegið að sínu uppáhaldsliði. Hann segir að hjá City séu margir heiðursmenn við stjórn.
„Kaldoon stjórnarformaður ásamt Spánverjunum Txiki, Sorriano og Pep Guardiola. Spánverjarnir breyttu fótboltanum og gerðu Barcelona að stórkostlegasta liði knattspyrnusögunnar. Pep besti þjálfari sögunnar. Því er haldið fram að þessir menn séu skúrkar og svindlarar. Þeir fóru frá Barcelona til Manchester til að byggja upp klúbbinn; knattspyrnulið í sérflokki sem unnið hefur 9 titla undanfarin ár; glæsilegustu unglingaakademíu heims, eitt besta kvennalið Englands, stærstu íþrótta- og sýningarhöll Evrópu og systurfélög um allan heim. Þetta er fordæmalaus uppbygging knattspyrnufélags. Ég fer fram á að ritstjórn leiðrétti missagnir og málflutning blaðsins og haldi blaðamönnum sínum að sannleikanum líkt og Matthías og Styrmir.“