Hallur Hallsson, sagnfræðingur og fyrrverandi fréttamaður, vandar RÚV ekki kveðjurnar í pistli sem hann skrifaði á Facebook. Tilefni skrifanna var húsleit bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, á heimili Donalds Trumps fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Hallur segir að pólitískar ofsóknir í Bandaríkjunum séu nú komnar á nýtt stig, en þær hafi byrjað á fyrstu vikum forsetatíðar Trumps. Þá hafi Demókratar byrjað að spinna lygavef um að Trump væri njósnari Vladimírs Pútín, forseta Rússlands.
Óvíst er hvað Hallur hefur fyrir sér en hann vandar RÚV ekki kveðjurnar og segir að íslenska þjóðin hafi fengið vitleysuna hráa og ómengaða „frá lygaveitu RÚV“ eins og hann kallar ríkisfjölmiðilinn.
„Allt reyndist þetta gabb sem sérstakur saksóknari leiddi í ljós. Samt bera pólitískir handverksmenn íslenska ríkisvaldsins á RÚV enn út lygina. Þar starfar áróðursveit, ekki fréttafólk. Rúvísk áróðurstaktík gengur út af því að ræna pólitíska andstæðinga æru með hatri og fordómum.“
Hallur virðist vera dyggur stuðningsmaður Trumps og segir að sjálfsagt sé markmiðið að Trump geti ekki boðið sig fram í forsetakosningunum eftir tvö ár. Menn óttist Trump þar sem hann nýtur yfirburðafylgis meðal repúblikana sem njóta aftur yfirburðafylgis á demókrata.
„Demókratar hafa vopnvætt FBI sem pólitískan arm flokksins. Þegar Hunter Biden var gómaður með hryllingstölvu sína uppfulla af glæpum og mútugreiðslum – Laptop from Hell – þá lugu Njósna Agentar að tölvan væri runnin undan rifjum Rússa og falsmiðlar kóuðu. Það var og er staðfest lygi sem við þekkjum. Hillary Clinton eyðilagði 33.000 tölvupósta í sýru og kom undan réttvísinni. FBI skaut skjólshúsi yfir frúna. FBI og CIA tóku þátt í Rússalygi – Russia-Hoax – demókrata. Kerfi og pólitík renna í sama farvegi. Könnumst við þetta hér á Íslandi?“
Hallur segir að RÚV sé á sömu vegferð og amerískir fjölmiðlar og fréttir þeirra séu í véfréttarstíl.
„Auðvitað er þetta allt yfirvarp. Joe Biden rændi völdum í nóvember 2020 í mestu kosningasvikum sögu Vesturlanda. Ameríku, hornsteini lýðræðis var stolið. Bandaríkin eru ekki lengur lýðfrjálst ríki hinna frjálsu og hugrökku. Bandaríkin er á hraðferð að 3ja heims ríki. Nágranninn Venezúela fyrrum ríkasta ríki S-Ameríku er nú rústir einar undir stjórn sózíalista.“
Hallur heldur áfram og segir:
„Ísland er á sömu vegferð, helsi og kúgun er handan horns í boði hóphyggjuflokka Alþingis, tortýming íslensks þjóðernis og menningar. Íslendingar þekkja pólitísk réttarhöld yfir Geir Haarde, rúvískar ofsóknir, hatur og fordóma í garð Davíðs Oddssonar, Sigmundar Davíðs og fleiri ‘andstæðinga RÚV‘. […] Hvenær labba alvöru fréttamenn út og mótmæla rúvízkri áróðursveitu ... Meðfylgjandi video er frá ræðu Trump á CPAC ráðstefnu Conservatives í Ameríku.“