„Mikið er ég stoltur af minni þjóð. Á tæpri viku eru komnar yfir 42.000 undirskriftir! Maður trúir þessu bara varla,“ segir rithöfundurinn Hallgrímur Helgason á Facebook-síðu sinni.
Hallgrímur deilir þar undirskriftasöfnun sem blásið var til þar sem biðlað er til stjórnvalda að veita Uhunoma Osayomore, 21 árs manni frá Nígeríu, alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarsjónarmiðum á Íslandi.
Samstöðufundur var haldinn á Arnarhóli á þriðjudag en þá gekk hópur fólks að dómsmálaráðuneytinu og aftur til baka.
Á þeim þremur klukkutímum sem eru liðnir síðan Hallgrímur skrifaði færsluna hafa margar undirskriftir bæst við og eru þær nú komnar yfir 43 þúsund.
Uhunoma flúði Nígeríu árið 2016, þegar hann var aðeins 16 ára, eftir að faðir hans myrti móður hans og yngri systir hans lést af slysförum. Hann fór til Lagos þar sem hann lenti í höndum þrælasala. Hann komst loks til Íslands í október 2019 en upplifði skelfilega hluti á leið sinni: Hann varð vitni að morðum, var haldið föngnum í fjárhúsi og varð ítrekað fyrir kynferðislegu ofbeldi. Uhunoma bjó í þrjú ár í flóttamannaíbúðum á Ítalíu.
„Eftir rúmt ár á Íslandi hefur Uhunoma eignast nýtt líf og ástríka fjölskyldu og vini, sem er eitthvað sem hann hefði ekki getað ímyndað sér fyrir örfáum árum síðan. Hann á heimili með Íslenskri fjögurra barna fjölskyldu og á vini sem geta ekki hugsað sér að missa hann úr lífi sínu og í þær hræðilegu aðstæður sem bíða hans á Ítalíu eða Nígeríu.
Sótt var um tímabundið atvinnuleyfi fyrir Uhunoma, sem var hafnað, en hans bíður atvinna um leið og leyfi fyrir hann fæst til að vinna hér á landi.
Uhunoma þarfnast engrar aðstoðar íslenska ríkisins og á sér aðeins þá einu ósk að fá að lifa óttalausu lífi sem fullgildur borgari á Íslandi með fjölskyldu sinni og vinum.“
Hægt er að leggja undirskriftasöfnuninni lið hér.