Hallgrímur Helgason, rithöfundur og listamaður, sá loksins umtalaðasta miðbæ landsins um helgina. Mikil uppbygging hefur verið á Selfossi undanfarin misseri og hefur nýr miðbær vakið mikla athygli.
Ef marka má orð Hallgríms á Facebook var hann afar hrifinn af því sem fyrir augu bar.
„Sáum loks umtalaðasta miðbæ landsins. Selfoss er ekki bara nýja Amsterdam heldur orðinn Self City! Og ljóst að Rvík hefur tapað þessum slag. Þarna er næsta miðja Íslands,“ segir Hallgrímur og bætir við að nýtt fasteignamat sanni þetta líka. Það hafi hækkað um 30% á Selfossi en 20% í Reykjavík.
„Og mathöllin var jafnvel þéttsetnari en sú á Hlemmi. Reyndar kunna þau ekki enn að elda Penne arrabbiata og ísbúðirnar eru ljósárum á eftir Gaeta við Ingólfstorg og sumir heimamenn kalla fyrirbærið Namibíu vegna Samherjatengslanna, en hey, þetta er örugglega það besta sem kvótagróðinn hefur gert fyrir landið, held þetta sé bara óvæntasti snúningur í byggðaþróun landsins. Og nú er því upplagt að leysa loks flugvallarmálið og flytja Reykjavíkurflugvöll austur á Selfoss,“ segir Hallgrímur og slær á létta strengi.