Hallgrímur Helgason rithöfundur segir að Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, þori að minnsta kosti að gagnrýna það hvernig staðið var að sölunni á hlut ríkisins í Íslandsbanka á dögunum.
Hann gagnrýnir VG aftur á móti harðlega fyrir það hvernig flokkurinn hefur tekið á málinu.
„Vil minna Vg á að þau sitja í stjórn með manni sem seldi pabba sínum bankann okkar, og ekki ein manneskja í röðum ykkar, ekki ein einasta ein, hefur stigið fram og sagt eitthvað varðandi það, aðeins bent á bankasýsluna,“ segir Hallgrímur og heldur áfram:
„Sem er eins og meðvirki makinn sem - þegar hún kemst að því að eiginmaðurinn hefur selt fjölskyldubílinn til vildarvina með afslætti - bregst við með því að heimta að bílasalinn segi af sér!“