Hallgrímur: Langt því frá að vera boðleg framkoma – „Stóð þarna pirraður og sveittur“

Hallgrímur Helgason rithöfundur segist enn vera að melta innkomu Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra og formanns Framsóknarflokksins, í fréttatíma RÚV í gærkvöldi.

Sigurður var þar mættur til að svara fyrir orð sín í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, á Búnaðarþingi um helgina. Sigurður hefur verið gagnrýndur harðlega vegna málsins og hafa ýmsir kallað eftir því að hann segi af sér sem ráðherra.

Í viðtalinu á RÚV í gærkvöldi sagðist Sigurður Ingi ekki hafa íhugað að segja af sér. Þá sagðist hann hafa gert tilraunir til að biðja Vigdísi afsökunar áður en málið fór á loft í fjölmiðlum. Hann vildi ekki endurtaka ummælin sem hafa verið til umræðu.

Hallgrímur var ekki hrifinn af frammistöðu Sigurðar Inga í fréttatímanum.

„Maður var bara stúmm. Þarna mætti hann sýnilega pirraður og reyndi að útskýra ummælin (sem hann fékkst ekki til að endurtaka, þrátt fyrir að vera beðinn um það í þrígang) með því að fólk hefði verið að þrýsta á hann í miðjum gleðskap um að vera með á mynd, þetta hefði pirrað hann og hann því látið þetta óvart út úr sér.“

Hallgrímur gefur ekki mikið fyrir skýringar hans.

„Látum það vera, að hann reyni með þessu að skella skuld sinni á aðra, lítilmótlegt sem það er. En að mæta svo fjórum dögum síðar í beina útsendingu, eftir að hafa haft fjóra daga til að melta viðbrögð sín og finna stærð sína og myndugleik, en hafa samt ekkert fram að færa nema pirring og dæs, enga auðmýkt og alls engan skilning á málinu, eðli þess og stærð, það varð bara til að gera stöðu hans verri.“

Hann vitnar svo í myndskeið sem birtist á Vísi í gær eftir ráðherrafund þar sem sjá mátti Sigurð Inga á flótta undan fréttamanni og tökumanni „upp götuna og yfir götuna, niður götuna og aftur yfir, í leit að bíl sínum, í leit að undankomuleið frá þjóð sinni og eigin samvisku, eins og eilítið hjólbeinóttur Samherjaforstjóri.“

Hallgrímur segir að þetta sé ekki boðlegt.

„Heldur fólk virkilega að hægt sé að durtast í gegnum svona mál? Það sem birtist okkur þarna í gær og gærkvöldi var ekki mjög myndugt, ekki mjög ráðherralegt, langt frá því að vera boðlegt. Sigurður Ingi stóð þarna pirraður og sveittur, eins og maður sem er búinn með allar sínar innistæður og á ekkert eftir nema afsögnina.“