Hallgrímur: „Körlum leyfist að dansa fávitadansinn en konum ekki“

„Anna Kolbrún ekki, Klausturkarlar já. Sigríður Andersen ekki, Brynjar Níelsson já. - Körlum leyfist að dansa fávitadansinn en konum ekki.“

Þetta segir Hallgrímur Helgason rithöfundur á Facebook-síðu sinni um tíðindi helgarinnar. Hallgrímur virðist þeirrar skoðunar að körlum sé frekar fyrirgefið en konum þegar eitthvað misjafnt kemur upp.

Eins og flestir vita hlutu þau Brynjar Níelsson og Sigríður Andersen ekki þá kosningu sem þau óskuðu eftir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um helgina. Brynjar, sem sóttist eftir 2. sætinu, endaði í fimmta sæti á meðan Sigríður, sem einnig sóttist eftir 2. sætinu, endaði ekki í einu af átta efstu sætunum.

Fimmta sætið gæti vel komið Brynjari á þing en á sama tíma er ljóst að Sigríður verður ekki þingmaður Sjálfstæðisflokksins á næsta kjörtímabili. Bæði hafa verið nokkuð áberandi í þjóðfélagsumræðunni undanfarin misseri og sérstaklega í sambandi við aðgerðir hér á landi vegna COVID-19.

Hallgrímur vísar einnig í landsfund Miðflokksins sem fór fram um helgina. Þar var kjörin ný stjórn þar sem Bergþór Ólason og Karl Gauti Hjaltason voru kjörnir en Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, sem einnig bauð sig fram, var hafnað. Öll tilheyra þau hópi hinna svokölluðu Klausturþingmanna.