Hall­grímur hjólar í Arnar og lands­liðs­menn: „Velur enn of aftur kyn­ferðis­brota­menn í lands­lið Ís­lands“

Ís­lenska lands­liðið í fót­bolta kemur saman á næstu dögum en liðið á leiki í undan­keppni fyrir EM. Mikil um­ræða hefur verið í kringum liðið á síðustu dögum en þó sér í lagi vegna þess að Arnar Þór Viðars­son lands­liðs­þjálfari hefur á­kveðið að velja ekki Albert Guð­munds­son leik­mann Genoa í liðið.

Rit­höfundurinn Hall­grímur Helga­son er allt annað en sáttur með Arnar en þó ekki endi­lega af þeirri á­stæðu.

„Bráðum þrjú ár síðan hann tók við og Arnar Þór er enn ekki búinn að finna sitt lið, enn að hringla með menn og hringja í menn (sem hann velur svo ekki). Lars tók sér hálft ár í að finna liðið, alveg nýtt lið (fáir þekktu þá suma leik­­mennina), og hélt því svo nánast ó­­breyttu næstu árin. Ekki nóg með það, heldur velur Arnar Þór nú enn og aftur kyn­­ferðis­brota­­menn í lands­lið Ís­lands eins og ekkert hafi gerst síðustu árin, eins og Vanda Sigur­­geirs­dóttir sé ekki orðin for­­maður KSÍ, eins og MeT­oo hafi aldrei gerst, eins og hug­rakkar konur hafi aldrei stigið fram. Þetta sýnir full­kominn karla­hroka, al­­gera sam­­fé­lags­blindu, sem og al­var­­legt skilnings­­leysi á hlut­­verki og á­byrgð lands­liðs­­þjálfara,“ skrifar Hall­grímur á Face­book.

„Hvernig á þjóðin að geta haldið með lands­liðinu sínu með þessa skugga innan­­­borðs? Og því ættu ungir og efni­­legir fót­­bolta­­menn sem eru að spila sína fyrstu lands­­leiki að þurfa að líða fyrir þetta á­­stand? Af­hverju mega þeir ekki fá nýtt upp­­haf með þjóðina að baki sér? Yfir­­­leitt myndi maður enda sinn status um fót­­bolta­lands­liðið með “Á­­fram Ís­land!” En því miður er það ekki hægt núna,“ heldur Hall­grímur á­fram.

Stefán Jón Haf­stein spyr Hall­grím hvað hann eigi við með þessu: „Blessaður fé­lagi, hvað áttu við með þessu: "kyn­­ferðis­brota­­menn í lands­lið Ís­lands". Ég átta mig ekki alveg á þessu. Best ég lesi listann aftur.“

Hall­grímur svarar Stefáni en vill þó ekki nafn­greina leik­mennina sem hann segir vera kyn­ferðis­brota­menn: „Allir vita nöfnin ég sendi þér skila­boð,“ segir Hall­grímur.

Kristján Loga­son spyr: „Er ein­hver dæmdur af­brota­maður í liðinu?“ – „Dómar og kyn­ferðis­brot – löng saga það“ segir Hall­grímur.