Þættirnir Verbúðin hafa slegið heldur betur í gegn meðal landsmanna en í gærkvöldi var sjötti þátturinn í seríunni sýndur. Óhætt er að segja að spennan sé í algleymingi enda hjónaband Hörpu og Gríms í uppnámi eftir atburðina ótrúlegu í fimmta þættinum.
Eftir þátt gærkvöldsins ruddust margir fram á ritvöllinn á Facebook og sögðu sína skoðun. Á Facebook-síðu rithöfundarins Hallgríms Helgasonar má sjá fjörugar umræður um þátt gærkvöldsins og atburðina í þeim.
„Held að Verbúðin sé stærri en okkur grunar. Náði nýjum hæðum í kvöld,“ sagði Hallgrímur í færslu sinni. Fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir, Sirrý, hrósaði fjölskyldufundinum sérstaklega.
„Fjölskyldufundurinn magnaður. Eiginkonurnar héldu sig til hlés enda ,,skilnaður bara vesen”,“ sagði Sirrý. Undir þetta tók fjölmiðlamaðurinn Jóhann Hauksson. „Helvíti mögnuð sena,“ sagði hann. Leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir bætti svo við: „Og rifrildið hjá prestinum, maður minn!“
Þorfinnur Ómarsson viðurkenndi reyndar að hann hafi sofnað í miðjum þætti og spurði hann hvort eitthvað rosalegt hefði gerst í lokin.
„Þetta var allt rosalegt sko, hér birtist sjálfur aðdragandinn að framsalinu og niðurlægingu Vestfjarða,“ svaraði Hallgrímur.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segist hafa séð þetta allt fyrir, eða því sem næst.
„Ég sá þetta gerast milli gigga þegar ég túraði landið, hring eftir hring. Byrjaði snemma að syngja um kvótann, sá hvað hvar á leiðinni.“