Hallgrímur Helgason rithöfundur sér ástæðu til að hrósa fjölmiðlafólkinu Snærósu Sindradóttur og Ingvari Þór Björnssyni. Snærós og Ingvar stýra Morgunútvarpinu á Rás 2 en óhætt er að segja að um sé að ræða einn vinsælasta útvarpsþátt landsins þar sem fjallað er um málefnum líðandi stundar.
„Held að RÚV hafi mögulega dottið niður á besta útvarpspar landsins. Þau eru með allan pakkann, natural talents. Frábærar raddir, forvitin, fersk og alltaf “on it”. Fín tónlist líka,“ segir Hallgrímur á Facebook og taka margir undir þetta hjá honum.
„Þau eru æði,“ segir í einni athugasemd og nokkrar aðrir bæta við og segja: „Sammála.“