Hallgrímur fór í búð í Færeyjum: Þetta hefur hann ekki séð á Íslandi

Hallgrímur Helgason, rithöfundur og samfélagsrýnir, birti áhugaverðar myndir á Facebook-síðu sinni í morgun frá heimsókn sinni til Færeyja.

„Smá öfund hér í Miklagarði í SMS í Tórshavn. Vöruúrvalið ískyggilega mun meira en heima og hægt að fá íslenskt lambalæri upp á 3,8 kg! Aldrei séð slíkt í búðum heima. Allt er víst betra hér í Færeyjum,“ segir Hallgrímur.

Ef marka má myndirnar sem Hallgrímur birti kostar 3,1 kílóa lambalæri 387 færeyskar krónur, eða tæpar 7.200 íslenskar krónur.